Lífið

Í beinni: Dagur 2 á Iceland Airwaves

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það er alltaf fjör á Airwaves. Reykjavíkurdætur fóru á kostum í gær.
Það er alltaf fjör á Airwaves. Reykjavíkurdætur fóru á kostum í gær. vísir/Birta Rán
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves byrjaði með pompi og prakt í gærkvöld. Erlenda gesti hefur drifið að í vikunni, en þeir verða í miklum meirihluta á hátíðinni. Búist er við mörg þúsund manns á hátíðinni.

Hundruð listamanna munu troða upp um bæinn þveran og endilangan næstu daga. Uppselt er á hátíðina, en alls seldust níu þúsund miðar. Alls verða um 5.500 erlendir gestir á hátíðinni í ár sem er met. Mikil stemning var á hátíðinni í gær og þótti fyrsta kvöldið fara vel fram.

Umræðan á Twitter hefur alltaf verið fyrirverðamikil á hátíðinni og keppist fólk einnig við að setja skemmtilegar myndir inn á Instagram. Hér að neðan má fylgjast með því sem er að gerast á þessum samfélagsmiðlum en til að taka þátt, þarf að merkja færslurnar með #airwaves15.

Útvarpsstöðin KEXP frá Seattle er einnig mætt til landsins og verður með beina útsendingu frá KEX Hostel eins og síðustu ár.

Tónleikarnir eru hluti af Off-venue dagskrá Airwaves og er aðgangur ókeypis. Hægt er að horfa á útsendinguna í spilaranum hér að neðan. 

Dagskráin á KEX í dag:

14:00 - Úlfur Eldjárn 

16:00 - Júníus Meyvant

18:00 - LoneLady

19:30 - Emmsjé Gauti 

21:30 - GusGus

Í Norræna húsinu er einnig metnaðarfull dagskrá þar sem fjöldi hljómsveita frá Skandinavíu koma fram. Tónleikarnir fara fram í nýjum tónleikasal sem kallast Svarti kassinn. 

Þeir eru hluti af Off-venue dagskrá Airwaves og er aðgangur ókeypis. Hér að neðan má fylgjast með beinni útsending frá Norræna húsinu. 

Dagskrá Norræna hússins í dag:

13:00 Vio

14:00 Wesen

15:00 Shelita Burke (US)

16:00 Moonbow (UK)

17:00 Dad Rocks (DK)

18:00 Dj. Flugvél og geimskip

Tónleikagestir á Iceland Airwaves eru einnig mjög duglegir að deila myndum og myndböndum frá öllu sem tengist hátíðinni í gegnum Instagram.

Hér fyrir neðan má sjá nýjustu myndirnar sem eru merktar með #airwaves15


Tengdar fréttir

Í beinni: Dagur 1 á Iceland Airwaves

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves byrjar með pompi og prakt í kvöld. Erlenda gesti hefur drifið að í vikunni, en þeir verða í miklum meirihluta á hátíðinni. Búist er við mörg þúsund manns á hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×