Fótbolti

Alfreð byrjaði er Sociedad missti unninn leik niður í jafntefli

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Alfreð á ferðinni með Sociedad.
Alfreð á ferðinni með Sociedad. vísir/getty
Real Sociedad gerði 1-1 jafntefli við Córdoba á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Sociedad og lék allan leikinn.

Ínigo Martinez kom Sociedad yfir á 11. mínútu og var Sociedad yfir allt þar til þrjár mínútur voru til leiksloka. Þá fékk Xisco boltann í sig inni í markteig eftir að fast skot Federico Cartabia fór í stöngina og í kviðinn á Xisco þaðan sem boltinn hrökk í opið markið.

Sociedad varð því að sætta sig við jafntefli en liðið hefur aðeins fengið þrjú stig í síðustu sjö leikjum sínum eftir óvæntan sigur á Real Madrid í annarri umferð deildarinnar.

Sociedad er með 6 stig í níu leikjum en Córdoba er í 18. sæti með stigi minna en Sociedad.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×