Fótbolti

Hernández með tvennu í sigri Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hernández fagnar öðru marka sinna í kvöld.
Hernández fagnar öðru marka sinna í kvöld. vísir/getty
Javier Hernández skoraði tvö mörk þegar Real Madrid bar 2-4 sigurorð af Celta Vigo á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Með sigrinum minnkaði Real Madrid forskot Barcelona á toppi deildarinnar niður í tvö stig en fimm leikir eru eftir af deildarkeppninni.

Nolito kom Celta Vigo yfir á 9. mínútu en Toni Kroos jafnaði metin sjö mínútum seinna.

Hernández, sem skoraði sigurmark Real Madrid gegn Atletico Madrid í átta-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn, kom Madrídingum í 1-2 á 24. mínútu en Santi Mina jafnaði metin fjórum mínútum síðar.

Kólumbíumaðurinn James Rodríguez kom Real Madrid aftur yfir tveimur mínútum fyrir hálfleik og Hernández gulltryggði svo sigurinn með öðru marki sínu á 69. mínútu.

Mexíkóinn er kominn með sex mörk í deildinni í vetur en leikurinn í dag var aðeins sá þriðji þar sem hann er í byrjunarliðinu.


Tengdar fréttir

Chicharito hetja Real Madrid | Sjáðu markið

Real Madrid skreið inn í undanúrslit Meistaradeildarinnar í kvöld með 1-0 sigri á tíu leikmönnum Atletico Madrid. Aðeins eitt mark var skorað í einvígi liðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×