Burnley komið í Meistaradeildarsæti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jóhann Berg í baráttu við Erik Pieters í kvöld.
Jóhann Berg í baráttu við Erik Pieters í kvöld. Vísir/Getty
Ævintýratímabil Burnley hélt áfram í kvöld er liðið vann sterkan 1-0 sigur á Stoke City í kvöld.

Það var Ashley Barnes sem skoraði eina mark leiksins einni mínútu fyrir leikslok.

Jóhann Berg Guðmundsson var í liði Burnley sem fyrr og lék allan leikinn.

Burnley er nú komið með 31 stig í fjórða sæti deildarinnar og hoppaði upp fyrir Tottenham, Arsenal og Liverpool með sigrinum í kvöld en er augljóslega búið að leika einum leik meira.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira