Bournemouth átti engin svör við sóknarleik Liverpool

Liverpool skellti sér upp í 4. sæti deildarinnar með 4-0 sigri á Bournemouth á útivelli í lokaleik dagsins í enska boltanum en þeir skutust upp fyrir Arsenal og Burnley með sigrinum.

Philippe Coutinho átti skot í stöngina á upphafsmínútum leiksins en hann kom Liverpool yfir á 20. mínútu þegar hann lagði boltann snyrtilega í netið eftir góðan einleik.

Dejan Lovren bætti við marki af stuttu færi sex mínútum síðar og setti Mohamed Salah þriðja mark Liverpool undir lok fyrri hálfleiks.

Roberto Firminho innsiglaði endanlega sigur Liverpool með snyrtilegum skalla á 66. mínútu en það reyndist vera síðasta mark leiksins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira