Fótbolti

Streller sá um Liverpool í Sviss | Sjáðu markið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
vísir/getty
Liverpool tapaði sínum fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu í ár er liðið lá gegn Basel í Sviss, 1-0.

Marco Streller skoraði eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik eftir viðburðarlítinn fyrri hálfleik. Streller skoraði af stuttu færi eftir að Simon Mignlet hafði slegið boltann út í teig.

Raheem Sterling og Mario Balotelli skoruðu báðir mörk sem voru dæmd af vegna rangstöðu en Liverpool náði þó lítið að ógna marki heimamanna. Steven Gerrard átti reyndar skot að marki úr aukaspyrnu undir lok leiksins sem var varið.

Bæði lið eru með þrjú stig í riðlinum en Real Madrid er á toppnum með sex stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Marco Streller kom Basel yfir á 52. mínútu:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×