Fótbolti

Neymar afgreiddi PSG | Sjáðu mörkin

Barcelona er komið í undanúrslit í Meistaradeild Evrópu eftir sannfærandi sigur á PSG í seinni leik liðanna. Lokatölur 2-0 og 5-1 samanlagt.

Staða PSG var ekki vænleg fyrir leikinn og dagskránni var svo gott sem lokið á 14. mínútu leiksins þegar Neymar skoraði í tómt markið eftir laglegan undirbúning Andres Iniesta.

Fjórði leikur Neymar gegn PSG í vetur og hann búinn að skora í þeim öllum. Það er að sjálfsögðu met. Þetta var 1.000 mark Barcelona í öllum Evrópukeppnum.

Áður en hálfleikurinn var allur var Neymar búinn að skora aftur og gera út um einvígið. Barca miklu betra liðið og leikmenn PSG virtust aldrei hafa trú á verkefninu.

Síðari hálfleikur var nánast spilaður til málamynda og í honum gerðist afar lítið.

Fyrra markið má sjá í spilaranum að ofan en hitt hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×