Fótbolti

Messi skoraði en náði ekki meti Ronaldo | Þrenna frá Arda Turan | Sjáðu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Barcelona vann öruggan 4-0 heimasigur á þýska liðinu Borussia Monchengladbach en spænska liðið var búið að tryggja sér sigur í riðlinum fyrir leikinn.

Arda Turan var maður kvöldsins á Nývangi en hann skoraði þrjú mörk á sautján mínútna kafla í kringum hálfleikinn.

Lionel Messi spilaði samt leikinn og átti smá möguleika á því að jafna markamet Cristiano Ronaldo yfir flest mörk í einni riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Cristiano Ronaldo skoraði 11 mörk 2015-16 og Messi var tveimur mörkum á eftir honum. Þetta leit vel út eftir að Messi skoraði sitt tíunda Meistaradeildarmark á tímabilinu eftir aðeins sextán mínútur.

Messi náði hinsvegar ekki að jafna met Ronaldo þrátt fyrir margar góðar tilraunir.

Tyrkinn Arda Turan var aftur á móti á skotskónum og varð sjötti leikmaður Barcelona sem nær að skora þrennu í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×