Fótbolti

Alfreð skoraði eina mark Augsburg og það dugði til - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg unnu frábæran sigur á Darmstadt, 1-0, í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en Alfreð skoraði eina mark leiksins.

Staðan var 0-0 í hálfleik en Alfreð gerði fínt mark í upphafi síðari hálfleiksins. Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum og tryggði Augsburg sér þrjú mikilvæg stig.

Þýskalandsmeistararnir í Bayern Munchen unnu sigur á Hamburger 1-0 á útivelli og halda þeir áfram góðu gengi í deildinni. Augsburg er í tíunda sætinu með sjö stig. FC Bayern er í efsta sætinu með 15 stig. Hér að ofan má sjá markið sem Alfreð skoraði í dag. 

Hér að neðan má sjá úrslitin í deildinni í dag.

Augsburg 1 - 0 Darmstadt

Borussia Moenchengladbach 2 - 0 Ingolstadt

Eintracht Frankfurt 3 - 3 Hertha Berlin

Hamburger SV 0 - 1 Bayern Munchen

Mainz 05 2 - 3 Bayer Leverkusen




Fleiri fréttir

Sjá meira


×