Fótbolti

Atletico enn á réttri leið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Miranda fagnar marki sínu í kvöld.
Miranda fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Atletico Madrid er komið með sex stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Elche í kvöld.

Staðan var markalaus lengi vel og virtist sem að Atletico yrði af mikilvægum stigum í toppbaráttunni.

David Villa brenndi af vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks en þegar átján mínútur voru til leiklsoka skoraði Miranda með skalla eftir hornspyrnu Jose Sosa.

Markahrókurinn Diego Costa innsiglaði svo sigurinn með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Atletico er komið með 85 stig en Real Madrid kemur næst með 79 stig auk þess sem liðið á leik til góða. Barcelona er svo í þriðja sætinu með 78 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×