Fótbolti

Barcelona hafði betur gegn Athletic Bilbao

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rakitic skoraði fínt mark í kvöld
Rakitic skoraði fínt mark í kvöld vísir/getty
Barcelona vann sigur á Athletic Bilbao, 1-0, á San Mames Barria vellinum í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Eina mark leiksins gerðr Króatinn Ivan Rakitic eftir tuttugu mínútna leik.

Barcelona var töluvert betri aðilinn í leiknum en leikmennirnir voru í vandræðum að koma boltanum oftar í netið.

Barcelona hefur því unnið tvo fyrstu leiki tímabilsins og er liðið með sex stig. Bilbao er aftur á móti með núll stig.

Þetta er í fyrsta skipti sem Barcelona vinnur leik síðan 29. ágúst árið 2015 þar sem hvorki Messi, Neymar eða Suarez skora. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×