Enski boltinn

Markalaust á Villa Park

Allt í járnum á Villa Park
Allt í járnum á Villa Park Vísir/Getty
Aston Villa og Newcastle gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik annarar umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á Villa Park í Birmingham í dag.

Aston Villa fékk sín bestu færi í fyrri hálfleik en náðu ekki að hitta markið í leiknum. Í seinni hálfleik var Newcastle mun hættulegra liðið og getur Aston Villa þakkað Brad Guzan markverði sínum það að liðið fékk stig í dag.

Mike Williamson fékk að líta sitt annað gula spjald á fyrstu mínútu uppbótartíma en Aston Villa náði ekki að nýta sér liðsmuninn þær fjórar mínútur sem eftir voru.

Þetta var fyrsta stig Newcastle á leiktíðinni en Aston Villa tyllti sér á toppinn, tímabundið hið minnsta, með sínu fjórða stigi en liðið hefur haldið hreinu í tveimur fyrstu leikjum tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×