Enski boltinn

Sögulegur sigur Arsenal | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alex Oxlade-Chamberlain tryggði Arsenal sigur á Chelsea í leiknum um Samfélagsskjöldinn á Wembley í dag. Lokatölur 1-0, Arsenal í vil.

Markið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Úrslitin eru söguleg en þetta er í fyrsta sinn sem Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur betur gegn Portúgalanum José Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea, en þetta var í 14. sinn sem lið þeirra mætast.

Oxlade-Chamberlain skoraði eina mark leiksins með glæsilegu skoti á 24. mínútu eftir undirbúnings Mesuts Özil og Theos Walcott.

Chelsea-mönnum gekk á köflum erfiðlega að opna sterka vörn Arsenal en þeir fengu dauðafæri í sitthvorum hálfleiknum; Ramires í þeim fyrri og Eden Hazard í þeim seinni en hvorugur þeirra hitti markið.

Oscar hitti markið úr aukaspyrnu á 69. mínútu en Petr Cech varði vel. Þetta var fyrsti leikur Cech gegn sínum gömlu félögum en hann gekk sem kunnugt er í raðir Skyttanna í sumar.

Arsenal fékk líka sín tækifæri til að bæta við forskotið en Thibaut Courtois varði frá Santí Cazorla og Kieran Gibbs úr dauðafærum.

Fleiri urðu mörkin ekki og Arsenal fagnaði sigri í þessum árlega leik ensku deildarmeistaranna og bikarmeistaranna.

Arsenal tekur á móti West Ham United eftir viku í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en Chelsea fær Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í Swansea í heimsókn á laugardaginn.

Bein textalýsing:

90+4 | 1-0 |
Gibbs í dauðafæri en Courtois ver aftur!

86. mín | 1-0 |
Cazorla kemst í dauðafæri, einn gegn Courtois sem ver vel! Ramsey skýtur svo yfir en fær horn.

82. mín | 1-0 |
Terry fer af velli og Victor Moses kemur inn hjá Chelsea. Arsenal gerir einnig skiptingu: Özil út, Kieran Gibbs inn.

77. mín | 1-0 |
Oxlade-Chamberlain á skot sem fer beint á Courtois og er svo tekinn af velli. Í hans stað kemur Mikel Arteta.

74. mín | 1-0 |
Zouma með skalla eftir hornspyrnu en Cech grípur hann af öryggi.

70. mín | 1-0 |
Giroud með skot yfir úr ágætis færi eftir sendingu Aarons Ramsey.

70. mín | 1-0 |
Kort Zouma kemur inn á fyrir Cesar Azpilicueta.

69. mín | 1-0 |
Cech ver glæsilega skot Oscars beint úr aukaspyrnu! Tékkinn sýnir hvers hann er megnugur þarna.

66. mín | 1-0 |
Walcott fer af velli og í hans stað kemur Oliver Giroud.

61. mín | 1-0 |
Hazard klúðrar sannkölluðu dauðafæri! Fábregas með frábæra sendingu inn fyrir á Belgann sem skýtur himinhátt yfir af stuttu færi! Chelsea-menn eru að herða tökin.

54. mín | 1-0 |
Oscar kemur inn fyrir Ramires. Brassi fyrir Brassa.

Seinni hálfleikur hafinn | 1-0 |
Mourinho er ekkert að bíða með hlutina og sendir Falcao inn á í stað Rémys sem var fjórum sinnum rangstæður í fyrri hálfleik.

Fyrri hálfleik lokið | 1-0 |
Glæsimark Oxlade-Chamberlain skilur liðin að. Markið má sjá í spilaranum hér að ofan.

41. mín | 1-0 |
Branislav Ivanovic bjargar frábærlega á fjærstöng eftir fyrirgjöf Oxlade-Chamberlain.



36. mín | 1-0 | Þarna munaði litlu! Ramires skallar boltann yfir úr dauðafæri eftir góða fyrirgjöf Loic Rémy. Englandsmeistararnir eru að minna á sig.

33. mín | 1-0 | Ramires með fínan snúning og ágætis skot en rétt framhjá.

24. mín | 1-0 |
MARK!!! Alex Oxlade-Chamberlain kemur Arsenal yfir með glæsilegu marki! Hann fær boltann frá Walcott, leikur inn á völlinn og þrumar boltanum í fjærhornið, óverjandi fyrir Courtois!

23. mín |
Theo Walcott með skalla beint á Thibaut Courtois eftir aukaspyrnu. Hættulítið.

18. mín |
Arsenal með snoturt spil fyrir utan vítateiginn en komast ekkert áleiðis gegn þéttri vörn Chelsea.

9. mín |
Cesc Fábregas liggur í teignum eftir viðskipti við Per Mertesacker, fyrirliða Arsenal. Chelsea biðja um víti en tala fyrir daufum eyrum Anthonys Taylor, dómara leiksins.

Leikur hafinn |
Þetta er farið af stað! Tímabilið 2015-16 er hafið!

Fyrir leik:
Lið Chelsea er líka mjög svipað og í fyrra. Diego Costa er frá vegna meiðsla aftan í læri og Loic Rémy byrjar í fremstu víglínu í hans stað. Radamel Falcao er á bekknum og gæti leikið sinn fyrsta keppnisleik fyrir Chelsea í dag.

Fyrir leik:
Arsenal teflir fram sama liði og í bikarúrslitaleiknum í fyrra, fyrir utan að Petr Cech kemur í markið og Alex Oxlade-Chamberlain leikur á vinstri kantinum en ekki Alexis Sánchez. Það hafa orðið litlar breytingar á liði Arsenal í sumar eins og byrjunarliðið gefur til kynna.

Fyrir leik:
Byrjunarliðin eru komin í hús og þau eru þannig skipuð:



Arsenal: Cech; Bellerín, Mertesacker, Koscielny, Monreal; Coquelin, Cazorla; Ramsey, Özil, Oxlade-Chamberlain; Walcott.

Chelsea: Courtois; Ivanovic, Cahill, Terry, Azpilicueta; Fábregas, Matic; Ramires, Willian, Hazard; Rémy.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×