Fótbolti

Ótrúleg endurkoma Arsenal | Sjáðu mörkin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Podolski fagnar sigurmarki sínu í kvöld.
Podolski fagnar sigurmarki sínu í kvöld. vísir/getty
Arsenal vann góðan 2-1 sigur á Anderlecht í Meistaradeild Evrópu í Belgíu í kvöld en bæði mörk enska liðsins komu undir lok leiksins.

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, fagnaði 65 ára afmæli sínu í dag og svo virtist sem að Belgarnir ætluðu að spilla gleðinni er Andy Nejar kom Anderlecht yfir með skallamarki á 71. mínútu.

En jöfnunarmarkið kom á 89. mínútu er Kieran Gibbs skoraði með góðu skoti. Það var svo Lukas Podolski sem tryggði Arsenal dramatískan sigur stuttu síðar er hann skoraði af stuttu færi.

Arsenal er því í góðri stöðu í öðru sæti riðilsins með sex stig en Anderlecht og Galatasaray eru bæði með eitt stig. Þýska liðið Dortmund er þó á toppi riðilsins með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.

Andy Najar skoraði fyrir Anderlecht á 71. mínútu: Kieran Gibbs og Lukas Podolski skoruðu mörk Arsenal:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×