Fótbolti

Juventus vann stórveldaslaginn

Juventus vann stórveldaslaginn gegn AC Milan í ítalska boltanum í kvöld, en Carlos Tevez skoraði eina mark leiksins.

Juventus var ívið betri aðilinn og var mun meira með boltann. Fyrsta og eina mark leiksins kom ekki fyrr en á 71. mínútu þegar Tevez skoraði sigurmarkið eftir laglega sendingu frá Paul Pogba.

Þannig urðu lokatölur og Juventus er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar, en AC Milan er með sex stig í þriðja sæti eftir þrjá leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×