Bílar

Hyundai-Kia nálgast 8 milljón bíla sölu í ár

Finnur Thorlacius skrifar
Hyundai Sonata.
Hyundai Sonata.
S-Kóreski bílaframleiðandinn Hyundai, sem einnig á Kia merkið stefnir í metsölu í ár og gæti hún farið yfir 8 milljón bíla sölu. Áætlanir ársins hljómuðu uppá 7,86 milljón bíla, en það var greinilega vanmetið þar sem miklar líkur eru á að salan fari yfir 8 milljónir bíla.

Í síðasta mánuði seldi fyrirtækið 1.097.250 bíla og jókst sala Hyundai um 1% en 7% hjá Kia. Þessi ágæti árangur Hyundai og Kia kemur ef til vill á óvart sökum hás gengis S-kóreska wonsins sem hefur aldrei verið skráð hærra og hamlar því útflutningi Hyundai og Kia.

Enginn gjaldmiðill hefur vaxið meira gagnvart dollar og S-kóreska wonið á síðustu 12 mánuðum, en á meðan hefur japanska yenið fallið um 10%. Þrátt fyrir það hefur góð sala í Brasilíu, Kína og Indlandi dregið vagninn hjá Hyundai og Kia og átt stærstan þátt í árangri fyrirtækjanna beggja á þessu ári. 







×