Glamour

Hvorki hrædd við mynstur né liti

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan Kate Bosworthn er augljóslega mikil áhugamanneskja um tísku, og er mjög skemmtilegt að fylgjast með hennar persónulega stíl. Hún er alls ekki hrædd við að klæðast litum og mynstri, og er algjör töffari.

Merki sem hún klæðist mikið er Chloé, Isabel Marant og Saint Laurent, en þau merki eru góð blanda af bóhem/rokk-stílnum sem hún virðist vera hrifin af. 

Hér fyrir neðan eru bestu dress Kate Bosworth undanfarið. 

Í brúnni flauelsdragt.
Á Critic's Choice Awards. Þessi kjóll klæðir nú ekki marga, en hún er flott í honum og förðunin passar vel við.





×