Lífið

Hvolpar, kettlingar og kind eru í uppáhaldi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Systkinunum finnst gott að hafa alltaf einhvern að leika við, spila við og fara með í sund.
Systkinunum finnst gott að hafa alltaf einhvern að leika við, spila við og fara með í sund. Mynd/Auðunn
Systkinin Ellen Klara Ívarsdóttir, átta ára, og Krister Máni Ívarsson, tíu ára, eiga heima á Akureyri. Í sumar ætla þau í sveitina og að ferðast til Frakklands.



Hvað er skemmtilegast við að eiga heima á Akureyri?

Ellen Klara: Hér á ég svo marga vini og það er líka svo góður skóli sem ég er í.

Krister Máni: Það er fótboltavöllur nálægt húsinu mínu, góðir vinir allt í kringum mig og stutt að fara allt sem mig langar.

Hvað er best við að vera systkin og hvað er skemmtilegast að gera saman?

Krister Máni: Það er gott að hafa alltaf einhvern að leika við og mér finnst skemmtilegast þegar við förum í sund og út að borða.

Ellen Klara: Þá er ég ekki alltaf ein og skemmtilegast finnst mér þegar við spilum og leikum saman.

dsfg
Hvað langar ykkur að verða þegar þið verðið stór?

Ellen Klara: Ískona og vinna í stórri ísbúð.

Krister Máni: Ég ætla að verða fótboltamaður eða bóndi, kannski bara bæði. 

Hvað ætlið þið að gera í sumar? 

Krister Máni: Æfa fótbolta, fara í Arsenalskólann, keppa á mótum, fara í sveitina og fara í ferðalög. 

Ellen Klara: Ég ætla að fara í sumarbúðir á Hólavatn og í útilegur, kannski á ættarmót. Svo ætlum við til Frakklands að heimsækja vini okkar í lok sumarsins.

Hvert er uppáhaldsdýrið ykkar?

Ellen Klara: Mér finnst hvolpar og kettlingar mjög sætir.

Krister Máni: Það er kind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×