Hvítasunnuhelgin byrjar vel - umferð þung en gengur vel 26. maí 2012 14:14 Umferð hefur gengið vel í dag.
Ein stærsta ferðahelgi ársins stendur nú yfir. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína út á land og segir lögregla að umferð hafi að mestu gengið vel fyrir sig. Þá segir stöðvarstjóri lögreglunnar á Selfossi að umferð hafi verið stöðug og að ökumenn hafi sýnt töfum skilning. Lítið sem ekkert hafi verið um hraðakstur og óhöpp engin. Það má þó búast við töfum á Selfossi á milli klukkan tvö og þrjú en þá mun fjöldi reiðmanna og hrossa leggja leið sína um bæinn. Tilefnið er opnun nýrrar Reiðhallar, Sleipnishöllin, klukkan þrjú í dag. Leið flestra liggur austur enda er spáð allt að 23 stiga hita á austanverðu landinu. Þannig var rólegt hjá lögreglunni á Blönduósi í dag, þó svo að umferð hafi verið þung í gær. Úr ýmsu er að velja um helgina en fjöldi hátíða fer fram víðsvegar um landið. Þar á meðal verður boðið upp á Vísindaveislu á Ísafirði en Háskólalestin mun koma við í bænum í dag. Þá stendur Blúsfélagið Hekla fyrir Norden Blues Festival á Hvolsvelli í kvöld og listamiðstöðin Nes á Skagaströnd verður með opið hús á morgun en þar verða verk 11 erlendra listamanna sýnd. Hiti á landinu hefur aukist jafnt og þétt síðustu daga. Eins og áður segir er spáð allt að 23 stiga hita á austanverðu landinu. Það kemur þó til með að rigna á Vestfjörðum seinna í dag en samkvæmt veðurstofu mun stytta upp þegar líður á daginn. Suðvestan 8 til 15 metrar á sekúndu og rigning norðvestan til, en annars hægari og bjart með köflum. Rigning víða Norðan og Vestanlands í kvöld, en lægir og léttir til í fyrramálið. Hægt vestlæg átt og yfirleitt bjartviðri á morgun. Þá verða þokubakkar úti við vesturströndina.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira