FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 10:17

Viðskipti með atvinnuhúsnæði 11 milljarðar í apríl

VIÐSKIPTI

Hvítá/Ölfusá: Net tekin upp vegna laxleysis

Vísir Veiði 11. ágúst 2012 11:51
Bíldsfell í Soginu sem er eitt af mörgum góðum veiðisvæðum sem treysta á lax sem gengur Ölfusá og Hvítá.
Bíldsfell í Soginu sem er eitt af mörgum góðum veiðisvæðum sem treysta á lax sem gengur Ölfusá og Hvítá. MYND/TRAUSTI HAFLIÐASON
Svavar Hávarðsson skrifar:
Hópur netaveiðirétthafa í Ölfusá og Hvítá mælist til þess að netabændur á svæðinu taki net sín upp það sem eftir lifir sumars eða dragi úr sókn. Ástæðan er lítil veiði á stöng í hliðarám og fjölmargir óvissuþættir um ástand laxastofna.

Ákvörðun hópsins var tekin eftir fund með Veiðimálastofnun í vikunni þar sem ástand fiskistofna á svæðinu var rætt. Ákvað fundurinn samhljóða að mælast til þess við netaveiðibændur að láta laxastofna á svæðinu njóta vafans og stuðla þannig að því að fleiri laxar nái að hrygna til að bæta seiðabúskap ánna

Haraldur Þórarinsson, netaveiðibóndi á Laugardælum, segir að hópurinn telji sig bera skyldu til þess að varðveita ána og gæta þess að hún nýtist til stangveiði eins og hún nýtist til netaveiði. „Við veiðum stóran fisk í bland við smálax framan af sumri. Núna, í lok júlí, virðist hins vegar smálaxinn ekkert vera að láta sjá sig. Okkur sýnist jafnframt að hluti af stóra fiskinum sem gekk niður í vor sé að ganga aftur núna. Svo virðist sem vanti 70-80% af ársgamla fiskinum í árnar og því bregðumst við svona við."

Snemmsumarsveiði í net á vatnasvæðinu hefur verið gagnrýnd harðlega með þeim rökum að nauðsynlegt sé að hleypa stærsta hrygningarfiskinum upp á hrygningarsvæðin og fresta því netaveiðum um tvær til þrjár vikur. Með því gætu netabændur lagt sitt á vogaskálarnar við að hlífa stórlaxi.

Spurður um hvort þessi gagnrýni sé ekki réttmæt í ljósi ákvörðunar netabænda í vikunni svarar Haraldur því til að netaveiðin hefjist ekki fyrr en bróðurparturinn af stóra laxinum sé þegar genginn. „Það er svolítið lamið á okkur netaveiðimönnum, en þegar öllu er haldið til haga þá verður netum ekki kennt um laxaþurrðina núna. Þetta ástand er í ám um allt land, þar sem ekki er veitt í net. Án þess að vilja deila við stangveiðimenn má samt spyrja á móti hvort ráðlegt sé að lemja stanslaust á fiskinum þegar hann er lagstur á hrygningarsvæðin, öfugt við það að við tökum fiskinn þegar hann er að hlaupa á milli svæða. Á ekki að hætta fyrr að veiða á stöng í ánum?"
Magnús Jóhannsson, sviðsstjóri hjá Veiðimálastofnun, segir að ákvörðun netabænda að bregðast við lítilli veiði sé virðingarverð. „Það kemur á óvart hversu veiðin er slök, sérstaklega í netin. Það bendir til þess að fiskgengdin sé lítil þó það sé ekki bundið við þetta svæði."

Um gagnrýni á snemmsumarsveiði tekur Magnús undir það að stóri laxinn sé betri hrygningarfiskur og því mæli Veiðimálastofnun með því að honum sé hlíft. Um seiðabúskap Ölfusár/Hvítársvæðisins segir Magnús hann hafa verið frekar slakann. „Þó hefur hann farið upp á við síðustu ár og tengst því að meira af laxi hefur hrygnt. Ég átti von á því að veiðin yrði betri miðað við þann seiðabúskap sem átti að standa undir veiðinni í sumar. Hafið virðist vera að bregðast okkur, sýnist mér. Svo kann að spila inn í hversu kalt vorið var í fyrra. Það hefur áhrif á þroska seiðanna og ekki loku fyrir það skotið að hluti seiðanna hafi ákveðið að bíða eitt ár. Það er vonin en það getur líka verið hættulegt því mikil afföll geta orðið árið sem bætist við í ánum."

Frekari umfjöllun um málið verður í Fréttablaðinu og hér á Veiðivísi á mánudag.

svavar@frettabladid.is

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Veiði 23. maí 2013 10:00

Smálaxakenningin er ágætis óskhyggja

Smálaxakenning Dr. David Summers, yfirmanns veiðimála í Tay í Skotlandi, er ágætis óskhyggja en það á eftir að koma í ljós hvort hún stenst segir Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri hjá Veiðimálastofnun. Meira
Veiði 22. maí 2013 18:13

100 urriðar hafa veiðst í Elliðaánum

Það sem af er maímánuði hafa veiðst 100 urriðar í Elliðaánum. Þetta kemur fram á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur, svfr.is. Í vorveiðinni, sem stendur til 5. júní, er veitt í ofanverðum Elliðaánum eð... Meira
Veiði 22. maí 2013 10:00

Áhugaverð kenning um smálaxagöngur

Veiðin í ánni Tay í Skotlandi, sem er ein af bestu laxveiðiám Bretlandseyja, tók stökk í apríl samanborið við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram á breska vefnum The Telegraph. Meira
Veiði 21. maí 2013 12:53

Gunnar Bender stendur Veiðivaktina enn eitt sumarið

Gunnar Bender hefur ákveðið að vera með veiðiþáttinn Veiðivaktina á sjónvarpsstöðinni ÍNN í sumar. Veiðiáhugamenn hljóta að fagna þessu enda er Gunnar þekktur fyrir skemmtileg efnistök og mikinn húmor... Meira
Veiði 20. maí 2013 14:59

Riftu samningi við Pálma Gunnars og félaga

Veiðifélag Eldvatns hefur rift samningi við Verndarsjóð sjóbirtingsins, sem Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður, er meðal annars í forsvari fyrir. Veiðipressan greindi frá þessu í morgun. Veiðivísir hefur... Meira
Veiði 18. maí 2013 23:59

Óskar Veiðifélagi Norðurár velfarnaðar

Þetta er mjög sérstakt árferði í veiðileyfasölu, ég held að staðan á íslenska veiðileyfamarkaðnum sé algerlega án fordæma. Erlendir veiðimenn hafa dregið úr komum sínum hingað og þeir íslensku halda a... Meira
Veiði 18. maí 2013 23:05

Urriðar að gefa sig þegar veður leyfir

Þá var hann ásamt einum öðrum veiðimanni á morgunfjörunni og náðu þeir að landa 13 sjóbleikjum og settu í mun fleirri svo hún er allavega mætt á svæðið. Meira
Veiði 17. maí 2013 19:11

Stjórn Norðurár sér sjálf um veiðileyfasölu sumarið 2014

Veiðifélag Norðurár hefur ákveðið að fela stjórn félagsins að sjá um sölu veiðileyfa sumarið 2014. Verður það gert í samvinnu við Einar Sigfússon, eiganda Haffjarðarár. Þetta kemur fram í tilkynningu ... Meira
Veiði 17. maí 2013 14:16

Veiðimenning við Þingvallavatn hefur stórbatnað

Við vatnið eru nú starfandi ellefu veiðiverðir auk þjóðgarðsvarða, og virðist sem að veiðibrotum með ólöglegri beitu hafi verið að mestu útrýmt á bökkum Þingvallavatns. Veiðin í vatninu hefur verið gó... Meira
Veiði 16. maí 2013 14:28

Þingvallavatn undir yfirborðinu - töfraveröld

En svo eru það þeir sem ganga skrefinu lengra og halda sjálfir niður í djúpið og mynda þessa eftirsóknarverðu bráð okkar í hennar náttúrulega umhverfi. Erlendur Guðmundsson atvinnukafari er einn þeirr... Meira
Veiði 15. maí 2013 14:28

Norðlenska veiðisumarið fer fetið

Góðar fréttir af veiði berast víða að þessa dagana, en þær eru flestar af afmörkuðu svæði á Suðvesturlandi. Meira
Veiði 14. maí 2013 21:03

Kynna veiðiperlur í Dölunum

Það er nóg um að vera hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur um þessar mundir enda veiðitimabilið nýhafið. Meira
Veiði 13. maí 2013 18:09

Hlíðarvatn gaf aðeins 725 bleikjur í fyrrasumar

Því ber að fagna hversu vel veiðist í sumarbyrjun í Hlíðavatni í Selvogi – sérstaklega undanfarna daga eftir að tók að hlýna. Meira
Veiði 12. maí 2013 08:00

Orri aftur í slag við Íra

"Það hefur staðið yfir barátta gegn því að það verði settar upp 10-15 þúsund tonna fiskeldisstöðvar í Galway-flóanum á Írlandi. Þetta hefur verið mikil barátta og ég hef reynt að leggja henni svolítið... Meira
Veiði 11. maí 2013 08:00

Opnunarhollið í Norðurá auglýst til sölu

Stjórn Stangveiðifélags Reykjavíkur mun ekki opna Norðurá í sumar eins og hefð er fyrir heldur selja hana ef viðundandi verð fæst fyrir. "Ef svo fer sem horfir munum við auglýsa eftir tilboðum strax í... Meira
Veiði 10. maí 2013 14:35

Líf að færast í vötnin

Fyrir utan gærdaginn hefur verið frekar kalt í veðri síðustu daga og því lítið um fréttir úr stóru vötnunum. Á vef Veiðikortsins er stiklað á stóru í fréttum af vötnunum og virðist sem þau séu að taka... Meira
Veiði 09. maí 2013 09:00

Nóg af fiski í Reynisvatni

Töluvert hefur verið sleppt af bleikju og silungi í Reynisvatn en veiðitímabilið þar hófst 1. mars síðast liðinn. Meira
Veiði 08. maí 2013 14:12

Frítt flugunámskeið fyrir 10. bekkinga

Í tilefni af 10 ára afmæli Stangveiðifélags Akureyrar (SVAK) ætlar félagið að bjóða 10. bekkingum í öllum grunnskólum Akureyrar uppá frítt fluguveiðinámskeið í júnímánuði. Meira
Veiði 07. maí 2013 11:33

Silungsveiði í Elliðaánum með ágætum

Silungsveiði í Elliðaánum hefur verið með ágætum undanfarið eftir erfiða byrjun. Urriðinn er farinn að sækja í æti eftir að hlýna fór í veðri, fluguveiðimönnum til mikillar ánægju. Þetta kemur fram á ... Meira
Veiði 06. maí 2013 13:58

Fékk 15 punda urriða í Varmá

"Þetta hefur verið óvenju gott það sem af er sumri," segir Hrafn H. Hauksson, nítján ára veiðimaður úr Veiðifélaginu Kvistum, sem veiddi 14-15 punda urriða í Varmá þann 1. maí síðastliðinn. "Hann var ... Meira
Veiði 05. maí 2013 17:30

Gjörbylting fyrir starfsfólk í Langá

"Þetta er algjör bylting fyrir starfsfólkið," segir Einar Ole Pedersen, formaður Veiðifélags Langár, um nýja viðbyggingu við Langárbyrgi. Meira
Veiði 04. maí 2013 20:00

Sprækir urriðar í Elliðaánum

Vorveiðin í Elliðaánum hrökk í gang í gær þegar níu urriðar skiluðu sér á land. Meira
Veiði 03. maí 2013 10:19

Flugukastkeppni á afmælisári

Stangaveiðifélag Akureyrar sem er tíu ára á þessu ári hyggst meðal annars minnast tímamótanna með flugukastkeppni við Leirutjörn. Meira
Veiði 02. maí 2013 20:30

Hægt að slíta upp fiska í norðangarra

Kuldatíðin setur verulegt strik í reikning veiðimanna nyrðra en slær þá samt ekki alveg út af laginu. Meira
Veiði 01. maí 2013 14:21

Fáir í opnun í frosti á Þingvöllum

Ekkert sást til veiðimanna í landi þjóðgarðsins þegar heimildarmaður Veiðivísis var við Þingvallavatn í hádeginu í dag. Við Elliðaár var ekki nokkur maður heldur á sama tíma. Veiðitímabilið hófst á þe... Meira
  • Fréttir
  • Veiði
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Veiði / Hvítá/Ölfusá: Net tekin upp vegna laxleysis
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000