Erlent

Hvíta húsið vill repúblikana þrátt fyrir ásakanir um kynferðisáreitni

Kjartan Kjartansson skrifar
Ásakanirnar um áreiti í garð unglingsstúlkna hefur ekki fælt hörðustu stuðningsmenn Moore frá því að kjósa hann.
Ásakanirnar um áreiti í garð unglingsstúlkna hefur ekki fælt hörðustu stuðningsmenn Moore frá því að kjósa hann. Vísir/AFP

Ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta segir að Hvíta húsið vilji að repúblikani verði kjörinn öldungadeildarþingmaður Alabama til að hann geti hjálpað þeim að samþykkja skattalækkanir þrátt fyrir að eini repúblikaninn sem á raunhæfa möguleika sé sakaður um kynferðislegt athæfi með unglingsstúlkum.

Ásakanir nokkurra kvenna um að Roy Moore, frambjóðandi repúblikana í sérstökum kosningum um annað öldungadeildarþingsæta Alabama, hafi elst við þær og haft uppi kynferðislega tilburði þegar þær voru unglingar eða ungar konur hafa umturnað kosningabaráttunni.

Alla jafna ættu repúblikanar sigur vísan í Alabama sem er afar íhaldssamt ríki. Moore er hins vegar umdeildur og hafa ásakanirnar gert keppni hans við demókratann Doug Jones hnífjafna.

Fann Jones allt til foráttu

Nokkrir leiðtogar repúblikana hafa hvatt Moore til að draga sig í hlé vegna ásakananna en hann hefur hafnað því algerlega. Þeir hafa meðal annars velt upp þeim möguleika að hvetja kjósendur flokksins til að skrifa inn nafn annars repúblikana á kjörseðilinn. Slíkt myndi þó líklega aðeins dreifa atkvæðum repúblikana og  tryggja demókratanum sigur.

Kellyanne Conway, ráðgjafi Trump, neitaði að svara því hvort að Hvíta húsið styddi Moore í viðtali við Fox en endurtók aðeins að það vildi fá repúblikana inn á þing.

Kellyanne Conway virðist vilja að repúblikanar kjósi mann sem er sakaður um kynferðislega tilburði við unglingsstúlkur til að skattalækkanir flokksins nái fram að ganga.Vísir/AFP

„Við viljum atkvæðin í öldungadeildinni til þess að koma þessu skattafrumvarpi í gegn,“ sagði Conway, að því er kemur fram í frétt Reuters. Gagnrýndi hún Jones jafnframt harðlega og sagði að hann myndi aldrei samþykkja skattalækkanir.

Repúblikanar reyna nú að samþykkja miklar breytingar á skattkerfinu í Bandaríkjunum. Gagnrýnendur þess fullyrða að það hækki skatta á millistéttarfólk á sama tíma og það veiti auðugustu Bandaríkjamönnunum skattaafslætti.

Moore, sem nú er sjötugur, er meðal annars sakaður um að hafa haft uppi kynferðislega tilburði við fjórtán ára stúlku þegar hann var saksóknari á fertugsaldri. Kosið verður um þingsætið 12. desember.


Tengdar fréttir

Slíta tengsl sín við Moore

Landsnefnd Repúblikanaflokksins ætlar að tengsl sín við Roy Moore, frambjóðenda flokksins til öldungadeildasætis Alabama. Moore hefur verið sakaður um að hafa brotið kynferðislega á táningsstúlkum á árum áður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×