Innlent

Hvetur sádiarabísk stjórnvöld til að endurskoða refsingu al-Nim

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveinsson vísir/ap
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í dag. Í ræðu sinni kom hann víða við og ræddi meðal annars mannréttindi, jafnrétti kynjanna og hlýnun jarðar.

Meðal annars skoraði hann á stjórnvöld í Sádi-Arabíu að milda dóm yfir hinum tvítuga Ali Mohammed al-Nim en hann var handtekinn árið 2012 eftir að hafa mótmælt stjórnvöldum í landinu. Hann hefur verið dæmdur til dauða en aftakan mun að óbreyttu fara fram með afhöfðun og krossfestingu. Skoraði hann á Sádí-Arbíu.

„Hvert sem litið er blasa við okkur áhrif hlýnandi loftlags jarðar,“ sagði Gunnar Bragi. Hlýnun jarðar þýddi að jöklar í norðri væru að bráðna og af því leiddi að yfirborð sjávar í suðri væri að hækka. Enn væri tími til að bæta úr en ráðherran telur að COP21 ráðstefnan í París gæti verið síðasti sénsinn. „Ísland hefur skuldbundið sig, ásamt öðrum Evrópuþjóðum, til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 40% fyrir árið 2030.“

Kynjahallann verði að jafna

Síðar í ræðu sinni vék ráðherrann máli sínu að málefnum flóttamanna. Vandinn hefði verið til staðar áður en átökin í Sýrlandi brutust út en nú væri hann verri en nokkru sinni fyrr. Benti hann á að 19. öld hefði um fimmtungur Íslendinga flúið land vegna fátæktar og erfiðra veðuraðstæðna og siglt vestur um haf til Norður-Ameríku.

„Við höfum öll séð tölurnar. Aðeins á þessu ári hefur hálf milljón manna flúið yfir Miðjarðarhafið til Evrópu og milljónir hafa flúið til nágrannalandanna. Ég vil minnast á nágrannalönd Sýrlands sem hafa skilyrðislaust veitt stærstum hluta flóttafólks skjól,“ sagði Gunnar Bragi. Hann kvatti Sameinuðu þjóðirnar til að sameinast til að leysa þetta vandamál.

Í niðurlagi ræðu sinnar vék Gunnar Bragi máli sínu að kynjahalla innan Sameinuðu Þjóðanna. Frá upphafi hafa átta aðilar, allt karlmenn, gengt stöðu aðalritara SÞ og telur Gunnar Bragi að nú sé tími til kominn til að kona taki við þegar Ban-Ki Moon hættir. Einnig væri kominn tími á að kona gengdi starfi forseta allsherjarþingsins. „Kynjahallinn í hæstu stöðum verður að vera jafnaður út til að tryggja áreiðanleika Sameinuðu þjóðanna,“ sagði ráðherrann.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×