Matur

Hvetur Íslendinga til að taka D-vítamín

Ellý Ármanns skrifar
Steinar B. Aðalbjörnsson íþróttakennaramenntaður næringarfræðingur.
Steinar B. Aðalbjörnsson íþróttakennaramenntaður næringarfræðingur.
"Samkvæmt niðurstöðum kannanna á mataræði Íslendinga eru fæstir að neyta nægjanlegs magns af D-vítamíni. D-vítamín er helst að finna í feitum fiski og þar erum við Íslendingar ekki nógu duglegir þrátt fyrir vel þekkt jákvæð heilsuáhrif frá fiskneyslu,"  segir Steinar B. Aðalbjörnsson íþróttakennaramenntaður næringarfræðingur sem heldur úti vefsíðunni hl-nuna.com en þar hvetur hann Íslendinga til að taka D-vítamín.

Steinar B. Aðalbjörnsson.
"Margir vilja þó meina að 15 mikrógrömm á dag sé ef til vill ekki nógu stór skammtur en það líður ekki á löngu þangað til ráðlagðir dagskammtar sem eru enn lægri en þetta verði hækkaðir til mikilla muna. Þá gætum við séð ráðleggingar í kringum 25 míkrógrömm á dag fyrir fullorðna."

Pistill Steinars - þar segir meðal annars í pistlinum hans: "Allir Íslendingar ættu að taka D-vítamín hið minnsta níu mánuði á ári (e.t.v. óþarfi í júní, júlí og ágúst)."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×