Skoðun

Hvert skal leita í veikindum

Helga María Guðmundsdóttir skrifar
Þegar almenn veikindi eða slys koma upp, þá er það ekki einungis sjúkdómsástndið eða áverkinn sem er vandamálið, heldur vaknar upp spurningin um hvert á að leita. Heilbrigðiskerfið okkar hefur verið mikið í umræðunni upp á síðkastið en ekki eru allir sem vita hvert skal fara þegar brestir verða á heilsunni.

Ef veikindi hafa átt sér stað í nokkra daga jafnvel vikur og einkenni fara versnandi er ráðlagt að leita til heilsugæslu. Í raun má hugsa það þannig að ef heimsókn til heilbrigðisþjónustu má bíða til næsta dags skal leita til heilsugæslu. Það er jafnframt ódýrasta leiðin til að komast undir læknishendur. Þar er almennt komugjald 1.200 kr, en einnig er opin síðdegisvakt eftir kl. 16 þar sem fólk mætir án tímabókunar og er komugjaldið þá 3.100 kr. Á heilsugæslum er einnig í boði hjúkrunarvakt og er öllum sinnt sem mæta.

Ef heilsubrestir krefjast sérfræðiþekkingar, getur heilsugæslulæknir gefið tilvísun á sérfræðilæknaþjónustu. Einnig er hægt að hafa beint samband á stofu sérfræðilækna og panta tíma. Sem dæmi má nefna húðlækna, ef útbrot hafa átt sér stað í langan tíma eða fara versnandi má hringja beint á stofu húðlæknis og panta tíma. Þar er þjónustan sérhæfðari en yfirleitt dýrari.

Komugjald hjá sérfræðilækni er almennt 5.700 kr. en það er misjafnt eftir læknisþjónustu. Upplýsingar um verðskrá má finna á vefsíðum viðkomandi læknisþjónustu eða með því má hringa á viðkomandi stofu. Bið eftir tíma hjá sérfræðilækni getur verið breytileg.

Ef veikindi koma upp um helgi, á frídögum eða eftir að heilsugæslu lokar er Læknavaktin næsti áfangastaður. Hún er opin frá kl 17 – 23:30 á virkum dögum og almennt milli 9 – 23:30 á frídögum og um helgar. Þar kostar koman almennt 3.100 kr. Einnig er hægt að biðja um vitjun læknis frá heilsugæslu eða Læknavakt en það kostar 3.400 kr. á dagvinnutíma en 4.500 kr. eftir kl. 16 á vikrum dögum og um helgar.

Ef um bráð og alvarleg veikindi eða slys er um að ræða, á að leita til slysa- og bráðamóttökunnar. Þar er almennt komugjald er 6.200 kr. en endurkomugjald er 3.400 kr.

Tekið skal fram að aðeins er verið að benda á verðskrá komugjalds. Greitt er aukalega fyrir þær rannsóknir sem framkvæmdar eru. Sem dæmi þarf að greiða fyrir hvert sýni sem sent er til rannsóknar á rannsóknarstofu, en almennt gjald er 2.500 kr. Einnig er einungis verið að benda á verð sjúkratryggðra einstaklinga 18 – 66 ára, börn og eldriborgarar greiða minna fyrir þjónustu en ósjúkratryggðir borga hærra gjald sem fer eftir reglugerð um heilbrigðisþjónustu sem velferðarráðuneytið gefur út.

Þegar sjúkratryggður einstaklingur á aldrinum 18 – 66 ára hefur greitt 35.200 kr á sama almanaksári vegna komu á heilsugæslu eða til heimilislæknis, vitjana lækna eða komu á slysa- og bráðamóttöku á hann rétt á afsláttarskírteini sem Sjúkratryggingar Íslands afhenda.

Heimildir

https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/1088-2014

https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/velferdarraduneyti/nr/19907



 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 30. maí 2016. 




Skoðun

Sjá meira


×