Skoðun

Hversdagsrasismi Framsóknarflokksins

Bjartur Steingrimsson skrifar
Síðastliðið föstudagskvöld lögðu hagfræði- og stjórnmálafræðinemar í Háskóla Íslands leið sína í samkvæmi. Samkvæmið var haldið í húsnæði Framsóknarflokksins á Hverfisgötu en kom þó flokknum ekki við. Það er þó ekki frásögu færandi að leigja húsnæði stjórnmálaflokka nema fyrir þær sakir að á ákveðnum tímapunkti kvöldins birtust óvænt tveir borgarfulltrúar flokksins ásamt þingmanni.

Myndband sem náðist af atburðinum sýnir einn borgarfulltrúann glaðværan með hvítvínsglas í hönd kynna annan þeirra fyrir hópnum með orðunum: ,,Hér er konan sem er á móti moskunni í Reykjavík...”. Vakti þetta mikla kátínu meðal þeirra flokkssystra og ekki síst þegar aðalnúmerið sveipaði gulu sjali sér um höfuð til að til að líkja eftir hefðbundnum höfuðklæðnaði múslímskra kvenna. Þar var að sjálfsögðu vísað í umræðu sem kviknaði vegna úthlutunar lóðar fyrir byggingu bænahúss Félags múslima á Íslandi í sveitarstjórnarkosningum síðasta vor.

Eins og frægt er þá lagðist framboð Framsóknar og flugvallarvina eitt framboða gegn úthlutun lóðar til Félags múslima á Íslandi, á síbreytilegum og afar ruglingslegum forsendum. Þessi afstaða þeirra, sem teflt var fram á lokametrunum í kosningabaráttunni, þótti margt minna á kosningabrellu til að ala á kynþáttahatri og fordómum.

Það sem kom í ljós, þegar kjörnir fulltrúar Framsóknarflokksins gerðust boðflennur í samkvæmi háskólanema, er að þeim þykir þetta ekki alvarlegt mál. Þegar bensínlaust framboð Framsóknar og flugvallarvina tefldi fram andúð gegn minnihlutahópi, sem hefur verið kerfisbundið mismunað um rétt sinn til að iðka trú sína og reisa bænahús í Reykjavík, þá þótti mörgum undirliggjandi fáfræði og fordómar samfélagsins koma skýrt fram á yfirborðið. Þá er rétt að spyrja sig hvort sé í rauninni verra; fólkið sem lætur ótta, fáfræði og fordóma stýra atkvæði sínu, eða þeir fulltrúar stjórnmálakerfisins sem eru reiðubúnir til þess að notfæra sér þá fáfræði til að kaupa sér kjörfylgi á síðustu stundu.

Ljóst er að þessir kjörnu fulltrúar Framsóknarflokksins, sem myndaðir voru í spjalli sínu við háskólanema síðastliðinn föstudag, deila ekki þessum áhyggjum. Í þeirra huga er þessi samfélagsumræða, um stöðu ólíkra minnihluta- og þjóðernishópa, þeim ekki áhyggjuefni. Í þeirra huga er hún einungis kjánaleg, þeim stekkur bros á vör, hún er aðhlátursefni. Raunar sagðist einn borgarfulltrúinn í samtali við fréttastofu Vísis "setja spurningamerki við hvaða stað við erum komin á þegar fólk er að taka upp á síma á föstudagskvöldi" og átti sennilega við að uppistand þeirra hafi einungis verið ætlað innan lokaðra dyra. Ég set spurningamerki við hvaða stað við erum komin á þegar hversdagslegur rasismi stjórnmálamanna þykir ekki mikið meira en gamanmál.


Tengdar fréttir

„Ég var nú ekkert sérstaklega drukkin“

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og flugvallarvina, neitar því að hún hafi verið mjög drukkin sl. föstudagskvöld.




Skoðun

Sjá meira


×