Innlent

Hvers og eins að meta aðstæður hverju sinni

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Á Langjökli. Þar var vonskuveður í gær, frost, úrkoma og rok.
Á Langjökli. Þar var vonskuveður í gær, frost, úrkoma og rok. vísir/stefán
Leitað var að tveimur ferðamönnum við Langjökul í gær eftir að þeir höfðu orðið viðskila við hóp vélsleðafólks í skipulagðri ferð. Ferðin var á vegum fyrirtækisins Mountaineers. Ríkisútvarpið greindi frá því að haldið hefði verið í ferðina þrátt fyrir stormviðvörun. Ferðamennirnir fundust rétt fyrir klukkan níu í gær, heilir á húfi.

„Það er hvers og eins fyrirtækis að meta aðstæður hverju sinni og setja sínar öryggisreglur. Það eru engar almennar reglur til en það er rétt að geta þess að þetta fyrirtæki hefur starfað lengi á markaði og er meðal annars í Vakanum, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF).

Aðspurð hvort ásættanlegt sé í augum SAF að halda í slíka ferð eftir að hafa fengið stormviðvörun segir Helga: „Ég held það sé ekki rétt á þessari stundu að svara því. Maður þarf að kynna sér betur hvað hafi legið að baki.“

Samkvæmt því sem segir í umfjöllun Ríkisútvarpsins hafði annað fyrirtæki aflýst vélsleðaferðum vegna veðurs. Mountaineers hafi hins vegar ekki þótt veðurspáin svo slæm að þess þyrfti.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF
Í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi sagði Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, að fjölmargir hafi tekið þátt í leitinni. Áður en fólkið fannst hafi um 160 manns tekið þátt í leitinni. Meðal annars göngufólk, skíðafólk og vélsleðafólk.

Þorsteinn sagði að svo virtist sem hópurinn hefði ekki farið upp á jökulinn. Hann hafi farið frá Geldingafelli, að Skálpanesi og þaðan að jökulsporðinum.

„Þar sneri hópurinn við því þá skall á vonskuveður. Það var orðið það dimmt að menn hættu að sjá á milli sleða. Í staðinn fyrir að gera eins og áhersla er lögð á, að stoppa, virðist sem þessi sleði hafi haldið áfram og týnst.“

Ferðamennirnir áttuðu sig hins vegar á mistökum sínum, stoppuðu og biðu eftir aðstoð norðaustan við Skálpanes. Þar fundust þeir og færðu björgunarsveitarmenn þeim heita drykki enda blautir og kaldir.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×