Lífið

Hvernig væri að elda asískt í kvöld?

Ellý Ármanns skrifar
Betty Wang eigandi Bambus veitingahússins í Borgartúni gefur lesendum Lífsins gómsæta uppskrift að nautakjöti með brokkolí að hætti Asíubúa.



Stir fry nautakjöt með brokkóli - fyrir fjóra


Hvað er stir fry? „Stir-fry er sígild kínversk eldunaraðferð til að elda mat í á stórri pönnu eða wok-pönnu," segir Betty áður en hún þylur upp uppskriftina.

Uppskriftin

250 gr nautakjöt, skorið í 3-4 cm bita

175 gr brokkóli, skorið í 2-3 cm bita

2 ½ msk matarolía

2 msk engifer, fin-rifið

4 - 6 stk hvítlauksgeirar

Betty eigandi Bambus í Borgartúni gefur okkur uppskrift að gómsætri nautakjötuppskrift.
Marinering

½ msk sojasósa

1 tsk rauðvín



Sósa


1 msk sojasósa

1 msk Oyster sósu

½ tsk salt

1 teskeið maís duft

4 msk vatn



Aðferðin:


Marineraðu nautakjötið með sojasósa og rauðvíni í 15 mínútur. Síðan skal sjóða brokkóli í 1-2 mínútur, Setja til hliðar og hita olíu á á stórri pönnu eða wokpönnu.  Stir – fry nautakjötið í 2-3 mínútur og setja til hliðar  Svo skal steikja engiferið í olíu á pönnu án þess að brúna. Setja kjötið síðan aftur á pönnu og bæta brokkóli og sósu við og steikja í 1-2 mínútur.

Bambus á Facebook

Hér má skoða myndir frá opnun Bambus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×