Fótbolti

Hvernig klúðruðu Lettar þessu? | Myndband

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lettland gerði jafntefli við Tékkland í riðli okkar Íslendinga, en lokatölur urðu 1-1. Vaclav Pilar jafnaði metin fyrir Tékkland í uppbótartíma, en rétt áður fengu gestirnir tækifæri til að gera út um leikinn.

Flestir leikmenn Tékka voru komnir ansi framarlega á völlinn til þess að reyna jafna metin, en Valerijs Sabala slapp þá einn í gegn. Hann lyfti boltanum yfir Petr Cech sem var kominn ansi framarlega.

Boltnin fór yfir Cech, en skrúfaðist rétt framhjá markinu. Sannarlega vond tíðindi fyrir Letta sem hafa enn ekki unnið leik í riðlinum.

Atvikið má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×