Erlent

Hvernig fara geimfarar í sturtu?

Samúel Karl Ólason skrifar
Samantha Cristforetti.
Samantha Cristforetti.
Geimfarinn Samantha Cristforetti sendi í gær frá sér myndband þar sem hún sýnir áhugasömum hvernig geimfarar í Alþjóðlegu geimstöðinni halda sér hreinum. Hún sýnir hvernig geimfarar nota vatn og sápu í þyngdarleysi, hvernig þeir tannbursta sig og margt fleira.

Samantha er fyrsta ítalska konan sem farið hefur út í geim og var hún þar að auki fyrst til að hella upp á espresso í geimnum. Hún fékk sérstaka kaffivél senda í síðasta mánuði sem hafði verið framleidd sérstaklega fyrir hana af Lavazza.

Sjá einnig: Nú er hægt að fá espresso í geimnum.

Geimfararnir í geimstöðinni senda reglulega frá sér myndbönd og myndir sem þeir taka af jörðinni og öðrum hlutum. Þar að auki er hægt að skoða jörðina með myndavélum sem búið er að koma fyrir utan á geimstöðinni hér.

Well, since you cannot be here with me let me show you around our space home! We'll start with our hygiene corner...

Posted by Samantha Cristoforetti on Tuesday, May 5, 2015

"Coffee: the finest organic suspension ever devised." Fresh espresso in the new Zero-G cup! To boldly brew...

Posted by Samantha Cristoforetti on Monday, May 4, 2015

Tengdar fréttir

Jörðin í beinni frá geimnum

Allir íbúar jarðarinnar geta skoðað jörðina úr rúmlega 431 kílómetra hæð, frá sjónarhorni geimfara í Alþjóðlegu geimstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×