Lífið

Hvernig eyða skal kosningavökunni

Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Stefán Þór Hjartarson skrifa
Ástþór Magnússon er einn af þeim sem eru í framboði eins og alþjóð veit.
Ástþór Magnússon er einn af þeim sem eru í framboði eins og alþjóð veit.
Drykkjuleikur



Sopi í hvert sinn sem Halla segir „horfum til framtíðar.“

Sopi í hvert sinn sem Davíð dregur fram reynslu-spilið.

Sopi í hvert sinn sem Guðni tekur enga afstöðu.

Sopi í hvert sinn sem Sturla lofar einhverju sem er engin leið að hann getur staðið við.

Sopi í hvert sinn sem Guðrún segir eitthvað.

Sopi í hvert sinn sem Ástþór fer að tala um samsæri.

Sopi í hvert sinn sem Hildur talar um bókina sína.

Sopi í hvert sinn sem Andri tafsar.

Sopi í hvert sinn sem Elísabet lofar glimmeri og bjölluhljómi.

Klára úr glasinu þegar þinn frambjóðandi vinnur.

Hvar er best að taka kosningavökuna?

Heima er best

Bjóða vinahópnum, setja snakk í skál og drykki í glas – þarf ekkert meira.

Petersen svítan

Það getur ekki annað verið en að EM dótið verði hreinsað út og kosningastemmingunni mokað inn.

Rauða herbergið

101 hótel er staðurinn til vera á þetta kvöldið fyrir þá sem eru „fancy“. Takið Rauða herbergið frá og fagnið (eða ekki) með stíl.

Sama stað og þinn frambjóðandi

Hhörðustu stuðningsmennirnir fylgja auðvitað sínum frambjóðanda. Það er hægt að skoða og fylgja handhæga listanum sem við birtum annarsstaðar á þessari síðu.

Hvar ætla frambjóðendurnir að vera?

Við höfðum samband við frambjóðendurnar og fengum að vita hvar þau ætla að eyða kosningavökunni.

Halla Tómasdóttir verður á Bryggjan brugghús klukkan 22:00 og það eru allir hjartanlega velkomnir.

Sturla Jónsson ætlar að vera á Café Milano í Skeifunni og að sjálfsögðu mega allir fagna með manni fólksins.

Hildur Þórðardóttir verður í Fundarsalnum Sundaborg 1, gengið inn sunnan megin. Allir velkomnir þangað klukkan 21:00.

Guðrún Margrét Pálsdóttir verður að heimili sínu Kríunesi 6 í Garðabænum – þar verður opið hús á meðan pláss leyfir.

Ástþór Magnússon verður með bænastund í kirkju Óháða safnaðarins.

Andri Snær Magnason heldur kosningavöku í Iðnó sem byrjar klukkan 21:00.

Guðni Th. Jóhannesson verður grand á því á Grand hóteli.

Davíð Oddsson verður í höfuðstöðvunum - kosningamiðstöðinni sinni Grensásvegi 10.

Elísabet Jökulsdóttir verður í Töfrahúsinu, Framnesvegi 56A. Þar mun hún njóta kvöldsins með vinum og kunningjum - ekkert áfengi verður í boði en það verður heitt á könnunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×