Lífið

Hvernig er þessi kjóll á litinn?

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Er þessi kjóll gylltur og hvítur? Eða svartur og blár?
Er þessi kjóll gylltur og hvítur? Eða svartur og blár? Mynd/Tumblr
Mynd af kjólnum hér til hliðar hefur farið eins og eldur í sinu um internetið seinustu klukkutímana og hefur fengið sitt eigið kassamerki á Twitter, #dressgate. En hvers vegna í ósköpunum?

Jú, vegna þess að fólk er ósammála um hvernig hann er á litinn. Einhverjir segja að hann sé gylltur og hvítur, aðrir segja að kjóllinn sé blár og svartur og enn aðrir að hann sé ljósblár og gylltur.

Vert er þó að taka fram að í rauninni er kjóllinn blár og svartur, eins og sést á Amazon sölusíðunni.

En af hverju sér fólk kjólinn í svona mismunandi litum? Samkvæmt vefsíðunni Buzzfeed fer það eftir hversu mikið ljós kemur inn sjónhimnu fólks. Sumir sjá meiri lýsingu á bláan og svartan kjól á meðan aðrir sjá minni lýsingu á hvítan og gylltan kjól. 

Þá er bara spurningin hvernig þú sérð kjólinn?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×