Innlent

Hverfandi líkur á að samningar takist

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari.
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari. Vísir/Stefán
Hverfandi líkur eru á að samningar takist á milli ríkisins og Bandalags háskólamanna áður deilan fer fyrir gerðardóm, að mati formanns BHM. Ríkissáttasemjari segir ekki tilefni til að boða til nýs samningafundar.

Samningnefndir ríkisins og BHM hittust síðast á fundi í Karphúsinu á þriðjudaginn eftir hálfs mánaðar hlé. Fundurinn reyndist árangurslaus og hann stóð aðeins í nokkrar mínútur. Enginn nýr samningafundur hefur verið boðaður. Í samtali við fréttastofu í dag sagði Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari að ekkert tilefni sé til að boða til nýs samningafundar að svo stöddu.

Ef nýjir kjarasamningar nást ekki á milli ríkisins og BHM fyrir 1. júlí þá fær gerðardómur það verkefni að skera úr um kjör háskólamanna. Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM telur litlar líkur á að samningar takist áður en deilan fer fyrir gerðardóm.

„Ætli að maður verði ekki að segja að líkurnar á því séu hverfandi. Það hefur ekkert breyst. Síðasti fundur var árangurslaus. Samninganefnd ríkisins hefur ekkert gert til að koma til móts við okkur og til þess voru lögin sett, til þess að skrifa inn þær forsendur sem að hentuðu öðrum samningsaðilanum. Þannig að það stefnir allt að einu,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir

Þórunn segir að ljóst hafi verið frá því um miðjan mánuðinn í hvað stefndi. „Það hafa engar forsendur breyst hinu megin við borðið,“ segir Þórunn.

BHM hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna laganna sem stöðvuðu verkfallsaðgerðir þeirra. Þórunn vonar að niðurstaða liggi fyrir júlí.

„Það er búið að þingfesta og málið verður tekið fyrir bráðlega og málflutningur 6. júlí og við fengum flýtimeðferð þannig að við eigum von á því að það falli dómur í júlímánuði í Héraðsdómi,“ segir Þórunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×