Erlent

Hver var Freddie Gray? - Myndbönd

Samúel Karl Ólason skrifar
Dauði Gray er sá síðasti meðal margra ungra svartra manna sem látið hafa lífið í átökum við lögreglu undanfarin misseri.
Dauði Gray er sá síðasti meðal margra ungra svartra manna sem látið hafa lífið í átökum við lögreglu undanfarin misseri. Vísir/EPA
Gífurlega miklar óeirðir áttu sér stað í Baltimore í Bandaríkjunum í nótt, eftir jarðaför hins 25 ára gamla Freddie Gray. Ólæti hafa þó verið í borginni frá 19. apríl, þegar Gray lést af sárum sínum á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir skaða á mænunni eftir átök við lögreglu.

Hann var handtekinn þann 12. apríl eftir að hafa hlaupið frá lögreglumanni, samkvæmt lögreglunni. Lögregluþjónar héldu honum niðri, handjárnuðu hann og færðu hann í lögreglubíl án sætisbeltis. Samkvæmt AP fréttaveitunni voru einnig járn sett um fætur hans í bílnum.

Bað um læknisaðstoð

Áður en Gray var settur í lögreglubílinn, bað hann margsinnis um læknisaðstoð en sjúkraliðar voru ekki kallaðir til, fyrr en Gray hafði verið í bílnum í 30 mínútur. Lögreglan hefur sagt að hann hefði átt að fá læknisaðstoð á vettvangi þar sem hann var handtekinn. Hann var einnig með astma og bað um að fá púst en var neitað.

Hann átti erfitt með að standa í fæturna og ganga, en hálftíma síðar þegar hann var kominn á lögreglustöðina gat hann hvorki talað né andað. Lögreglan hefur ekkert sagt til um hvernig hann skaddaðist á mænunni í haldi lögreglu.

Samkvæmt fjölskyldu Gray var hann með þrjá brákaða hryggjarliði og kramið barkakýli. Læknar hafa tengt þessi meiðsli við alvarlegt bílslys. Lögreglubíllinn sem Gray var í stöðvaði tvisvar sinnum á leiðinni til lögreglustöðvarinnar, en ekkert myndefni er til sem sýnir hvað gerðist á leiðinni.

Einn margra

Dauði Gray er sá síðasti meðal margra ungra svartra manna sem látið hafa lífið í átökum við lögreglu undanfarin misseri. Gray var svartur en lögreglan hefur ekki gefið upp litarhaft þeirra sex lögregluþjóna sem hafa verið leystir frá störfum á meðan rannsókn stendur yfir.

Freddie Gray ólst upp í fátækt í Vesturhluta Baltimore og var með blýeitrun vegna hrörlegs húss sem hann bjó í. Samkvæmt Guardian lýsir fjölskylda hans honum sem ástríkum, umhyggjusömum og virðingafullum ungum manni sem ávalt var með bros á vör.

Þrátt fyrir að vera reið yfir því hvað kom fyrir Freddie Gray, segir fjölskylda hans að óeirðir og ofbeldi sé ekki svarið. Lögmaður fjölskyldunnar segist vonast til þess að halda friðargöngu seinna í vikunni.

Jarðarförin Bæjarstjóri Baltimore um óeirðirnar Frétt CNN – Með símamyndbandi Símamyndband af handtökunni

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×