Erlent

Hver var árásarmaðurinn í München?

Atli Ísleifsson skrifar
Árásarmaðurinn var átján ára Þjóðverji af írönskum uppruna.
Árásarmaðurinn var átján ára Þjóðverji af írönskum uppruna. Vísir/AFP
Þýskir og erlendir fjölmiðlar hafa í morgun nafngreint manninn sem ábyrgð bar á árásinni í München. Segja þeir hann hafa heitið Ali David Solboly, átján ára þýskan pilt af írönskum uppruna. Solboly bjó á heimili foreldra sinna og var fæddur og uppalinn í München.

Níu manns fórust í árásinni sem átti sér stað í og í kringum verslunarmiðstöðina Olympia-Einkaufszentrum sem er að finna í hverfinu Moosach nærri Ólympíuvöllinn í borginni. Auk þeirra sem fórust fyrirfór Solboly sér skömmu eftir árásina. Flest fórnarlömbin voru á aldrinum fjórtán til tvítugs.

Einfari

Fréttamaður Verdens Gang hefur rætt við nágranna Solboly og segir hann hafa verið einfara og borið út dagblöð. Fyrir árásina sáu einhverjir nágrannanna hann bera út blaðið, og tók einhver þeirra eftir því að hann heilsaði þeim ekki. „Hann var oft einn á ferð eða í fámennum hópum,“ segir nágranninn Safete Dalipi í samtali við VG.

Lögregla gerði húsleit á heimili Solboly og foreldra hans snemma í morgun, en íbúðin er í hverfinu Bezirk Maxvorstadt. Þar fannst ekkert sem benti til tengsla við hryðjuverkasamtökin ISIS, en hins vegar fundust fjöldi dagblaðagreina um skotárásir í skólum. Einnig fannst bókin Amok in Kopf – warum schuler töten sem fjallar um ástæður þess af hverju nemendur ákveða að drepa aðra.

Solboly-fjölskyldan býr í fjölbýlishúsi við Dachauer Strasse í München.Vísir/AFP
Glímdi við þunglyndi

Lögregla greindi einnig frá því í morgun að Solboly hafi verið einn að verki og að hann hafi glímt við þunglyndi og leitað aðstoðar vegna þess.

Solboly notaðist við 9 mm Glock skammbyssu í árásinni og segir lögregla að hann hafi ekki verið með tilskilin leyfi fyrir byssunni.

Tengsl við Breivik

Lögregla í München segir ljóst að tengsl séu á milli árásarmannsins og árása Anders Behring Breivik í Ósló og Útey árið 2011, en fimm ár voru í gær frá árásunum í Noregi. Segir lögregla ljóst að Breivik hafi veitt Solboly innblástur.

Á myndskeiði frá árás gærdagsins má sjá árásarmanninn hrópa að hann hafi þurft að þola einelti í sjö ár þar sem hann stóð á þaki verslunarmiðstöðvarinnar. Segja nágrannar hafa lesið um að hann hafi þurft að þola einelti á netinu, en að foreldrar hans hafi aldri minnst á að eitthvað væri að.

Ekkert kveðjubréf hefur fundist og segir lögregla ljóst að foreldrar Solboly hafi ekkert vitað um áætlanir sonar síns, en þeir eiga einnig yngri son.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×