Enski boltinn

Hver tekur við enska landsliðinu? | Líklegustu kostirnir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
vísir/getty
Aðeins 68 dögum eftir að hafa ráðið Sam Allardyce sem landsliðsþjálfara er enska knattspyrnusambandið aftur í þjálfaraleit.

Stóri Sam tók við enska landsliðinu af Roy Hodgson eftir að England féll óvænt úr leik fyrir Íslandi í 16-liða úrslitum á EM í Frakklandi í sumar.

Allardyce náði þó aðeins að stýra enska liðinu í einum leik, 0-1 útisigri á Slóvakíu. Uppljóstranir The Telegraph í fyrradag gerðu honum nær ómögulegt að vera áfram í starfi og svo fór að Allardyce hætti í gær, eftir aðeins 67 daga í draumastarfinu.

En hver verður næsti þjálfari enska landsliðsins? Gareth Southgate tók við liðinu til bráðabirgða og mun stýra því út þetta ár, í alls fjórum leikjum. Hvað gerist eftir það er hins vegar ekki vitað.

Vísir fór yfir þá einstaklinga sem eru líklegastir til að taka við enska landsliðinu samkvæmt veðbönkum.

Southgate er innanbúðarmaður hjá enska knattspyrnusambandinu.vísir/getty
Gareth Southgate

46 ára Englendingur

Þjálfari enska U-21 árs landsliðsins

Efstur á blaði veðbanka. Southgate hafði ekki áhuga á landsliðsþjálfarastarfinu í sumar en ákvað að taka starfið að sér tímabundið eftir að Allardyce hætti.

Southgate hefur þjálfað enska U-21 árs landsliðið síðan 2013 og er innanbúðarmaður hjá enska knattspyrnusambandinu. Hann þekkir starfið út og inn og hefur unnið með mörgum af yngri leikmönnum A-landsliðsins.

Undir stjórn Southgates mistókst enska U-21 árs liðinu að komast upp úr riðlakeppninni á EM 2013 og 2015. Árangur Southgate með Middlesbrough var heldur ekki merkilegur, liðið féll vorið 2009 og þá um haustið fékk hann svo sparkið.

Bruce átti farsælan feril en náði þrátt fyrir það aldrei að spila A-landsleik fyrir England.vísir/getty
Steve Bruce

55 ára Englendingur

Án starfs

Kom til greina sem arftaki Hodgsons og ræddi við enska knattspyrnusambandið um möguleikann á að taka við landsliðinu.

Bruce býr yfir mikilli reynslu og hefur þjálfað nær samfleytt frá árinu 1998. Hefur aldrei þjálfað stórlið og sigurhlutfall hans í ensku úrvalsdeildinni er aðeins 28,1%. Kom Birmingham og Hull City upp í úrvalsdeildina og fór með síðarnefnda liðið í bikarúrslit fyrir tveimur árum.

Bruce er án starfs eftir að hafa hætt hjá Hull í sumar. Hann hefur einnig verið orðaður við stjórastarfið hjá Stoke.

Pardew er ekki allra.vísir/getty
Alan Pardew

55 ára Englendingur

Stjóri Crystal Palace

Sagði í sumar að hann væri ekki tilbúinn til að taka við enska landsliðinu. Spurningin er hvort eitthvað hafi breyst á þeim tíma.

Pardew hefur þjálfað í 17 ár með sæmilegum árangri. Hann fór með West Ham United og Crystal Palace í bikarúrslit og kom Newcastle United í Evrópukeppni.

Pardew er hins vegar óheflaður og umdeildur maður sem er kannski það síðasta sem enska landsliðið þarf í dag. Fékk þriggja leikja bann fyrir að skalla David Meyler, leikmann Hull, í mars 2014.

Howe hefur náð eftirtektarverðum árangri með Bournemouth.vísir/getty
Eddie Howe

38 ára Englendingur

Stjóri Bournemouth

Efnilegasti enski stjórinn í bransanum og hefur náð frábærum árangri með Bournemouth. Kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrra og hélt því nokkuð þægilega uppi á síðasta tímabili.

Howe er þekktur fyrir að láta lið sín spila skemmtilegan fótbolta og predikar sóknarleik.

Hann er hins vegar aðeins 38 ára gamall og reynslulítill. Óvíst er hvort hann myndi vilja taka svona stórt starf að sér á þessum tímapunkti á ferlinum.

Hoddle stýrði Englandi á HM 1998.vísir/getty
Glenn Hoddle

58 ára Englendingur

Án starfs

Var frábær leikmaður á sínum tíma og stýrði enska landsliðinu með góðum árangri á árunum 1996-99. Þurfti að segja af sér vegna ummæla sinna um að fatlaðir væru að gjalda fyrir syndir sínar í fyrra lífi.

Þjálfaraferill Hoddles byrjaði vel lofaði mjög góðu en það rættist ekki úr honum.

Hoddle hefur ekki stýrt liði í áratug en á þó sína stuðningsmenn sem vilja sjá hann taka aftur við enska landsliðinu.

Klinsmann kom Bandaríkjunum í undanúrslit í Suður-Ameríkukeppninni í sumar.vísir/getty
Jürgen Klinsmann

52 ára Þjóðverji

Þjálfari bandaríska landsliðsins

Leiddi þýska knattspyrnusambandið inn í nútímann og undir hans stjórn lenti Þýskaland í 3. sæti á HM á heimavelli fyrir 10 árum.

Stoppaði stutt við hjá Bayern München og hefur átt misjöfnu gengi að fagna með bandaríska landsliðið síðan hann tók við því 2011.

Klinsmann nýtur virðingar á Englandi eftir tíma hans sem leikmaður með Tottenham Hotspur. Hann býr enn í Bandaríkjunum og ku hafa lítinn áhuga á að flytjast til Evrópu sem vinnur væntanlega gegn honum.


Tengdar fréttir

Shearer: Enska landsliðið er aðhlátursefni

Alan Shearer, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Englands, segir að enska landsliðið sé aðhlátursefni í fótboltaheiminum eftir að Sam Allardyce hætti sem landsliðsþjálfari eftir aðeins 67 daga í starfi.

Stóri Sam segist iðrast gjörða sinna

Eins og fram kom á Vísi fyrir skemmstu er Sam Allardyce hættur sem þjálfari enska landsliðsins í fótbolta. Allardyce entist aðeins 67 daga í draumastarfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×