Hver sjóður kaupi lítinn hlut í HS Orku 2. september 2009 06:30 Óljóst er hvernig ríkið, lífeyrissjóðirnir, sveitarfélög og fleiri ætla að fjármagna kaup á meirihluta í HS Orku. fréttablaðið/valli
Lífeyrissjóðir eru taldir ólíklegir til að vilja eiga stóran hlut í HS Orku, komi til þess að opinberir aðilar taki sig saman um kaup á 55 prósenta hlut Geysis Green Energy í félaginu. Fjármálaráðuneytið og iðnaðarráðuneytið munu á næstu dögum setja saman viðræðuhóp ríkisins, lífeyrissjóðanna, Grindavíkurbæjar og fleiri aðila um samstarf um eignarhald á HS Orku. Kannaðar verða forsendur þess að ganga til samninga við Geysi Green Energy um kaup á meirihlutaeign þess félags. Stjórnvöld leggja áherslu á aðkomu sterkra eigenda að HS Orku svo það geti gegnt stóru hlutverki í atvinnuuppbyggingu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er talið ólíklegt að lífeyrissjóðirnir séu tilbúnir að setja verulega fjármuni í eitt félag. Auk þess takmarkast fjárfestingargeta hvers lífeyrissjóðs við lög um lífeyrissjóði sem banna fjárfestingar umfram tuttugu prósent í óskráðum félögum. Eftir hrunið var lögum breytt þannig að fjárfestingarhlutfallið var hækkað úr tíu prósentum. Ástæðan var að svo mörg félög hefðu dottið út úr kauphöllinni og fleiri óskráð félög yrðu á ferðinni sem hugsanlegur fjárfestingarkostur fyrir lífeyrissjóðina. Vegna þessa er talið útilokað að einstakir lífeyrissjóðir nýti takmarkaða fjárfestingarheimild í eitt eða fá fyrirtæki. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefur sagt að ríkissjóði verði seint beitt til kaupa á hlut GGE. Hann útilokar ekki að leitað verði til almennings með fjármögnun slíkra kaupa. „Það er allt of snemmt að segja nokkuð um það,“ sagði Steingrímur í gær, spurður hvað ríkið væri tilbúið að teygja sig langt í kaupum á hlut GGE í HS Orku. Heimildarmenn Fréttablaðsins eru sammála um að aðkoma ríkisins hljóti að verða í gegnum ríkisbankana; Íslandsbanki og Landsbanki eigi hagsmuna að gæta nú þegar vegna eignarhluta þeirra í GGE. Það sama á við um fjóra til sex lífeyrissjóði sem eiga fjörutíu prósent í Glacier Renewable Energy Fund, sem aftur á stóran hlut í GGE. Í nýrri fimm manna stjórn GGE eru fulltrúar lífeyrissjóða, Landsbanka og Íslandsbanka auk verkfræðistofunnar Mannvits. Hlutur GGE, sem er um 55 prósent, er metinn á um tuttugu milljarða króna ef forsendur samnings Magma Energy og Orkuveitu Reykjavíkur er hafður til hliðsjónar. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Marius látinn laus Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Innlent Fleiri fréttir Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Sjá meira