Skoðun

Hver mun eiga bankana?

Guðlaugur Gylfi Sverrisson skrifar
Í aðdraganda komandi kosninga er bara einn flokkur búinn að setja fram stefnu um eignarhald á bönkum landsins. Það er yngsti flokkur landsins, Miðflokkurinn, sem kynnti stefnumál sín 15. október sl.

Í stefnunni segir að fyrst skuli innleysa Arion banka til ríkisins. Í framhaldinu mun vera farið í það að leysa til ríkisins umfram-eigið fé bankanna þriggja. Það er metið allt að 130 milljarðar sem bankar í dag þurfa jafnframt að ávaxta á markaði. Þess má geta að vogunarsjóðir er reyndu að kaupa Arion banka, en þau kaup voru góðu heilli stöðvuð, gætu greitt kaupverðið fyrir bankann að stærstum hluta með innleysa til sín umfram-eigið fé Arion banka.

Það er stefna Miðflokksins að selja Arion banka þannig að íbúar landsins fái afhent þriðjung hlutafjár, almennir fjárfestar geti keypt þriðjung og þriðjungur verði eftir í eigu ríkisins, til að byrja með eða þar til markaður með hlutabréfin hefur þróast. Hver Íslendingur sem er lifandi á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. desember 2019 eignast eitt hlutabréf í bankanum og þarf viðkomandi að eiga hlutabréfið í þrjú ár.

Íslandsbanki verði seldur erlendri fjármálastofnun og mun það skilyrði vera sett að nýr eigandi þarf að eiga bankann að lágmarki í 10 ár.

Landsbankinn verður áfram í eigu ríkisins. Landsbankanum verði þó skipt upp í tvær einingar. Önnur eining Landsbankans mun stunda bankaviðskipti eingöngu á netinu. Bankanum verður sett eigendastefna sem mun innifela að hafa lágmarksyfirbyggingu og rekstrarkostnað í nýrri einingu og nýta sér nýjustu þróun og tækni í bankastarfsemi.

Nýja einingin í Landsbankanum á að taka litla áhættu en hafa það meginmarkmið að bjóða viðskiptavinum sem best kjör með lágmarksvaxtamun. Það þýðir að Landsbankinn mun aðeins veita svokölluð minni lán, til dæmis lán til einstaklinga vegna húsnæðiskaupa og til smærri fyrirtækja með traust veð. Bankinn mun leiða saman lánveitendur sem sækjast eftir hóflegri en öruggri ávöxtun og lántaka með örugg veð á borð við fasteignir. Þannig mun bankinn geta boðið lægri vexti og leiða íslenska fjármálakerfið inn í breyttan heim.

Bankar og bankastarfsemi mun taka miklum breytingum á næstu misserum, einkum vegna framþróunar í tækni, við því verður eigandi Landsbankans að vera viðbúinn.

Í ljósi þessarar stefnu Miðflokksins hljóta aðrir stjórnmálaflokkar að segja kjósendum frá hugmyndum og stefnu sinna flokka um eignarhald á bönkunum í nánustu framtíð.

Höfundur skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×