Glamour

Hver klæðir Lady Gaga í nótt?

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Það er engin önnur en Lady Gaga sem ætlar að troða upp í hálfleik á Superbowl sem fer fram vestanhafs í nótt. Það er ávallt mikil eftirvænting fyrir hálfleiksatriðinu enda angir aukvisar sem hafa komið þar fram í gegnum tíðina eins og til dæmis Michael Jackson, Beyonce, Coldplay, Bruno Mars og Katy Perry. 

Lady Gaga er ekki þekkt fyrir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur þegar kemur að búningavali og eigum við því nokkuð víst von á góðu í nótt þegar Lady Gaga kemur inn á völlinn. Ítalski fatahönnuðurinn Donatella Versace, sem hefur oft klætt söngkonuna í gegnum tíðina, gaf þó upp góða vísbendingu á Instagram reikning sínum í dag þar sem hún sagðist vera á leiðinni til Houston. Spennandi!

Útsending hefst klukkan 23 á Stöð 2 Sport, en það má kannski fylgja sögunni að það eru New England Patriots og Atlanta Falcons sem eru að mætast á vellinum og keppa um Ofurskálina eftirsóttu. 

Just in time for the biggest performance of my life... NEW #GAGA MERCH TO CELEBRATE #SB51 shop.ladygaga.com

A photo posted by xoxo, Joanne (@ladygaga) on






×