Fótbolti

Hver Íslendingur eytt tæplega hálfri milljón í að elta landsliðið á EM

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kostar sitt en er þess virði þegar árangurinn er svona góður.
Kostar sitt en er þess virði þegar árangurinn er svona góður. vísir/vilhelm
Hver Íslendingur sem er búinn að fara á alla þrjá leiki íslenska landsliðsins í Frakklandi og er á leið á leikinn gegn Englandi í kvöld er búinn að eyða um 470.000 krónum í ævintýrið.

Þetta kemur fram í úttekt enska markaðsfræðingsins David White sem hann vinnur í samstarfi við veðmálafyrirtækið Ladbrokes. Samkvæmt útreikningum hans munu þessir fjórir leikir kosta Íslendinga 2.735 pund eða 470.000 íslenskar krónur.

Inn í jöfnunni er flugfar, gisting, matur, miðar og aðrir fylgihlutir þess að fylgja sínu liði á stórmóti eins og að kaupa treyju liðsins. Þessar 470.000 krónur eru 170 prósent af meðallaunum íslenska stuðningsmannsins.

Strákarnir okkar eru búnir að skora fjögur mörk á mótinu en hvert mark hefur skotað 895 pund eða 153.000 krónur. Ísland er enn taplaust á EM og mætir Englandi í 16 liða úrslitum í Nice í kvöld.

Hér má sjá hvað meðalstuðningsmaður allra liða á EM er að borga fyrir að elta sitt lið.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Nú mega lömbin sparka

England og Ísland mætast í fyrsta mótsleik þjóðanna í sögunni á EM 2016 í Nice í kvöld. Í boði er farseðill í átta liða úrslitin á Evrópumótinu í Frakklandi. Síðast mættust liðin í vináttuleik á Manchester-stadium fyrir tólf árum þegar strákarnir okkar voru notaðir sem boxpúðar sem máttu ekki slá á móti.

EM-dagbókin: Af hverju getur Ísland ekki unnið England?

Ég stóð uppi í stúku á Allianz Riviera-vellinum, eða Hreiðrinu eins og við köllum það, og fylgdist með æfingu íslenska liðsins eftir blaðamannafundinn í Nice í gær. Menn voru bara að skokka í hringi eins og alltaf á þessum opnu fimmtán mínútum.

EM í dag: Nice í Nice

Það er leikdagur. Ísland - England í 16-liða úrslitum EM og það á frönsku rivíerunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×