Innlent

Hver er uppáhaldskennarinn þinn?

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ásta Óskarsdóttir nefndi Lilju Hjaltadóttur fiðlukennara til sögunnar.
Ásta Óskarsdóttir nefndi Lilju Hjaltadóttur fiðlukennara til sögunnar.
Sigurður líffræðikennari í Kvennó, Ósk í barnaskóla Hjallastefnu, Friðrik Borg, Jón í Austurbæjarskóla, Jónína Guðmundsdóttir dönskukennari í Keflavík og Lilja Hjaltadóttir fiðlukennari eru kennarar sem nemendur muna vel eftir. Þetta kemur fram í myndbandi sem Kennarasambandið lét gera í tilefni alþjóðadags kennara sem er í dag.

Í myndbandinu kemur fram fólk á öllum aldri og segir frá uppáhaldskennara sínum og hvers vegna hann hafi haft svo góð áhrif á það. Fram koma Edda Sóley Óskarsdóttir, Hulda Fanný Pálsdóttir, Markús Freyr Arnarsson, Ásta Óskarsdóttir, Jón Gunnar Kristjónsson og Guðfinnur Sigurvinsson. Dúi Landmark vann myndbandið.

Uppáhalds kennarinn minn from Kennarasamband Íslands on Vimeo.

Kennarasambandið í samstarfi við Heimili og skóla efnir til málþings klukkan 16 í dag þar sem fjallað verður um samfélagsmiðla og kennslu. 

„Þetta er verðugt málefni og mikið rætt innan kennarastéttarinnar sem og víðar. Hvaða gagn má hafa af samfélagsmiðlum og hvað ber að varast við notkun þeirra? Málþing á Grand Hóteli klukkan 16 – málþingið verður líka í beinni útsendingu á netsamfelag.is.

Alþjóðadagur kennara hefur verið haldinn hátíðlegur 5. október af hálfu UNESCO og Alþjóðasamtaka kennara síðan árið 1994. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á hinu mikilvæga starfi sem kennarar innan af hendi á degi hverjum.

Um 30 milljón kennarar í 171 landi tilheyra Alþjóðasamtökum kennara og íslenskir kennarar eru stoltir af því að tilheyra öflugri heimshreyfingu sem berst fyrir sjálfbærum samfélögum, friði og réttilæti að því er segir í tilkynningu frá Kennarasambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×