Heilsa

Hver er rétti tíminn til barneigna?

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Rannsakendur frá Hollandi bjuggu nýlega til reiknilíkan sem segir til um hvenær sé rétti tíminn til að eignast barn eftir aldri konunnar, fjölda barna sem hana langar í og hvort hún sé tilbúin að leita eftir tæknifrjógvun eða ekki.

Líkanið tekur tillit til fósturmissis og ófrjósemis og er byggt á 10.000 pörum.

42 ára gömul kona hefur því helmingslíkur á því að eignast barn ef hún vill bara eignast 1 barn og er tilbúin að nýta sér tæknifrjógvun.

Ef þig langar að eignast 1 barn og vilt ekki nýta þér tæknifrjógvunar úrræði þá hefur þú 90% líkur á að ná því markmiði um 32 ára aldurinn.

Ef þú hinsvegar vilt 2 börn þá ættir þú að byrja reyna 27 ára.

Aldurinn hækkar svo ef þú ert tilbúin til að nýta þér tæknifrjógvun á einn eða annan hátt.

Frjósemi kvenna minnkar markvisst eftir 30 ára og sérstaklega eftir 35 ára og því er hér verið að vinna með líkindi.

Kona sem sættir sig við  75% líkur á getnaði, getur byrjað að reyna 37 ára ef hún vill bara 1 barn, 34 ára ef vill 2 börn og 31 árs ef vill 3 börn.

Nánar má rýna í tölfræðina og grafið hér að neðan.

Chart of percentage chance of success when starting families at various ages.
Source:LiveScience

Tengdar fréttir

Fæðingarpartí?

Hver á að vera viðstaddur fæðingu barns? Er þetta partí sem fólk má eiga von á að vera boðið í eða gera jafnvel sumir kröfu um að vera með?

Hreyfing á meðgöngu

Sú mýta hefur verið öðrum yfirsterkari að óléttar konur eigi alls ekki að hreyfa sig en nú er öldin önnur.

Fjörið eftir fæðinguna

Nú er meðgöngunni lokið og barnið komið í heiminn svo við tekur gleði og hamingja...eða hvað?

Í undirheimum ófrjóseminnar

Oddný Eir Ævarsdóttir skrifaði opinskáa bók um reynslu sína af ófrjósemi. Hún fann sátt og sleppti tökunum af þránni eftir barni. Stuttu seinna varð hún barnshafandi.

Fæðingarsögur

Fæðingar geta verið allskonar og því getur verið gaman að renna í gegnum fæðingarreynslu nokkurra kvenna og eins föðurs

Tími á milli barneigna

Þegar barn er fætt fer af stað klukka og nú velta margir foreldrar því fyrir sér hvort eiga skuli fleiri börn og þá hvenær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×