Lífið

Hver er maðurinn með skeggið?

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Myndir og sjónvarpsviðtöl við Huga hafa birst um allan heim.
Myndir og sjónvarpsviðtöl við Huga hafa birst um allan heim. Vísir/Getty/Einkasafn
Einn stuðningsmaður Íslands í Frakklandi hefur hlotið sérstaklega mikla athygli erlendra fjölmiðla. Þetta er enginn annar en Hugi Guðmundsson tónskáld sem hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2014.

Hugi er búsettur í Kaupmannahöfn þar sem hann býr með eiginkonu og börnum. Hann hefur verið á dönskum listamannalaunum síðustu ár og hefur nýlokið við að semja óperuna Hamlet in Absentia sem frumflutt 16. ágúst í Kastala Hamlet‘s á sérstakri hátíð til heiðurs skáldsins William Shakespeare þar sem í ár eru 400 ár frá dauða hans.

Þrátt fyrir að æfingar séu að fara á fullt hefur það ekki verið klassíska tónlistin sem hefur átt hug Huga síðustu vikur, heldur fótboltinn.

„Ísland vinnur alltaf 2-1 þegar ég mæti, þannig að ég er að berjast við sjálfan mig um að reyna komast á leikinn á sunnudaginn,“ segir Hugi sem undirbýr að yfirgefa Nice í dag. „Þetta er þvílíkt ævintýri. Maður er enn að kippa sig í höndina.“

Í fréttum um allan heim

Hugi ákvað að lita sítt skegg sitt í fánalitunum fyrir leikinn á móti Austurríki. Síðan þá hefur hann verið stoppaður á tveggja metra fresti í Frakklandi til þess að láta taka af sér mynd. Bæði Reuters fréttastofan og Getty hafa sett myndir af honum á gagnabanka sína og rússneskar og norskar sjónvarpsstöðvar sáu ástæðu til þess að taka við hann viðtal. Einnig tók Reuters við hann stutt sjónvarpsviðtal í kjölfar myndatöku en sú fréttastofa birtir fréttir um allan heim.

Einnig sá verðandi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ástæðu til þess að stoppa við og láta smella af sér einni mynd með tónskáldinu fyrir utan leikvanginn í Nice.



Birkir tæklar Rashford.vísir/getty
Birkir skaut hattinn af Huga

Hugi lenti í skemmtilegu atviki í leiknum í gær og fékk boltann óvænt gefið á sig beint af vellinum.

„Ég var fyrir aftan annað markið og þegar Íslendingar voru hinum megin lenti ég í því að Birkir Sævarsson átti skot sem fór rétt yfir markið og hann fór beint að mér. Ég rétt náði ég að grípa boltann. Þó ekki betur en svo að hatturinn flaug af mér. Þá er maður inn í leiknum!“

Hugi vonast til að finna leið til þess að komast á leikinn á sunnudag. Ef ekki þá er hann staðráðinn í því að komast á fjórðungsúrslitin eftir að Ísland vinnur Frakkland. Eitt er víst, að það yrði ekki slæmt fyrir íslenska stuðningsmannahópinn að hafa annálaðan bjartsýnismann í hópnum. Því miður vantar honum enn miða.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×