Lífið

Hver er Jerome Jarre?

Jóhannes Stefánsson skrifar
Skjáskot af Vine-aðgangi Jerome.
Skjáskot af Vine-aðgangi Jerome.
Í Smáralindinni í dag söfnuðust saman þúsundir unglinga svo halda mætti að Justin Bieber hefði mætt eða Bítlarnir fyrir nokkrum áratugum síðan. Það er því ekki nema von að flestir séu forvitnir um hver Jerome Jarre sé.

Jerome er franskur strákur sem hefur öðlast heimsfrægð fyrir skemmtileg myndbönd á samfélagsmiðlinum Vine og mætti því kalla hann „vænara". Vine er sambærilegt samskiptamiðlinum Instagram nema að því leiti að einungis er hægt að hlaða upp sex sekúndna örmyndböndum á Vine. Jerome er því einskonar net-skemmtikraftur.

Hann hefur meðal annars komið fram í spjallþætti Ellen Degeneres og myndbönd hans hafa verið birt af fjölmiðlum víðsvegar um heiminn.

Tenging Jerome við íslenska unglinga fer þó aðallega í gegnum Facebook-síðu hans þar sem hann sendir hlekk á myndbönd sín.

Meginþemað í myndböndunum Jerome eru vandræðalegar eða fyndnar uppákomur með ókunnugu fólki og honum hefur tekist svo vel til að nú fylgja honum tæplega fjórar milljónir á Vine. Frægð hans er til komin vegna þess að fólk deilir myndböndum hans sín á milli í gegnum Vine smáforritið eða á öðrum samskiptamiðlum og þeir sem vilja geta gerst fylgjendur eða áhangendur hans. Þannig fást myndbönd Jerome beint í símann jafnóðum og hann gefur þau út.

Hér má sjá öll „væn“ Jerome en hér fyrir neðan má sjá Jerome Jarre og kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson bregða á leik.


Jerome eyddi áramótunum við Hallgrímskirkju og birti þetta myndband í kjölfarið.
Ellen DeGeneres fékk Jerome í viðtal til sín í haust þar sem hann fer meðal annars yfir Vine-ævintýrið.

Tengdar fréttir

Börn slösuðust í öngþveiti í Smáralind

Smáralind troðfylltist af unglingum sem vildu bera Vine-stjörnuna Jerome Jarre augum. Tjón varð á bílum og vitni segja gríðarlegan múgæsing hafa skapast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×