Matur

Hver af þessum fimm verður kokkur ársins 2016?

Rikka skrifar
Denis Grbic, Ari Þór Gunnarsson, Axel Björn Clausen, Hafsteinn Ólafsson, Sigurjón Bragi Geirsson
Denis Grbic, Ari Þór Gunnarsson, Axel Björn Clausen, Hafsteinn Ólafsson, Sigurjón Bragi Geirsson visir/antonBrink
Næstkomandi laugardagskvöld fer fram úrslitakeppni í Kokkur ársins 2016 í Hörpu. Í vikunni sem er að líða kepptu tíu keppendur sín á milli um þau fimm sæti sem í boði eru á úrslitakvöldið. Keppendurnir elduðu kjúklingarétt eftir sínu höfði sem átta dómarar dæmdu eftir útliti, bragði og faglegum vinnubrögðum í eldhúsi.

Þeir fimm sem keppa sín á milli á laugardagskvöldið eru þeir Ari Þór Gunn­ars­son hjá Fisk­fé­lag­inu, Axel Björn Clausen Mati­as hjá Fisk­markaðnum, Den­is Grbic hjá Grill­inu á Hót­el Sögu, Haf­steinn Ólafs­son hjá Nasa og Sig­ur­jón Bragi Geirs­son hjá Kola­braut­inni.

Að sögn Hafliða Halldórssonar, eins af aðstandenum keppninnar, var mjótt á muninum hjá fyrrnefndum keppendum og má því búast við harðri keppni í Hörpu. 

Á föstudagskvöldið fá keppendur klukkustund til að skoða það hráefni sem er í boði í keppninni sjálfri og munu þeir nýta sér það í forrétt, aðalrétt og eftirrétt. 

Sam­hliða úr­slita­keppn­inni verður glæsi­leg­ur fjór­rétta Kokka­landsliðskvöld­verður í boði ásamt veglegri skemmtidagskrá auk þess sem Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun krýna sig­ur­veg­ara keppn­inn­ar kl. 23:00 sem hlýt­ur titil­inn Kokk­ur árs­ins 2016. Þeir sem vilja tryggja sér miða geta sent tölvupóst á netfangið chef@chef.is

Sigurvegari keppninnar heldur svo til Danmerkur í mars þar sem hann mun taka þátt fyrir Íslands hönd í hinni virtu keppni Nordic Chef of the year. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×