ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ NÝJAST 17:30

Feðgin dæmdu í 1. deild kvenna

SPORT

Hver á ekki heima á þessari mynd?

Vísir Erlent 26. apríl 2012 21:30
Margaret situr lengst til hægri í neðri röð.
Margaret situr lengst til hægri í neðri röð. MYND/AP
Umhverfisráðherra Svíþjóðar fékk óvæntan gest þegar hún hélt matarboð fyrr í vikunni. Nokkrir ráðamenn í Svíþjóð fengu boð en svo virðist sem að boðskort fyrrverandi landbúnaðarráðherra landsins hafi ekki borist réttum aðila.

Hin 67 ára gamla Margaret Winberg, sem býr í Sundbyberg, rétt fyrir utan Stokkhólm, fékk boðskortið sem stílað var á nöfnu hennar. Margaret er á eftirlaunum og hefur að eigin sögn lítinn áhuga á umhverfismálum en þau átti einmitt að ræða í boðinu.

Margaret var í skýjunum þegar boðskortið frá Lenu Ek, umhverfisráðherra, kom í gegnum lúguna. Hún tók kvöldið frá og fór að íhuga í hverju hún ætti að fara.

Loks kom að kvöldinu og Margaret mætti með boðskortið í hönd. Hún heilsaði mörgum af helstu sérfræðingum veraldar í umhverfismálum og skemmti sér konunglega.

„Það var mikið af áhugaverðu fólki þarna," sagði Margaret. „Þar á meðal þessi Blix," en þar vísaði Margaret til Dr. Hans Blix, fyrrverandi yfirmann vopnaeftirlits Sameinuðu Þjóðanna.

Talsmaður Lenu Ek sagði að ráðherrann hefði hlegið mikið að atvikinu. Margaret var tekið með opnum örmum og fékk hún meðal annars að sitja fyrir á mynd með diplómötunum.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Erlent 21. maí 2013 15:43

Mótmæli í kjölfar hatursglæps

Mark Carson var skotinn í höfuðið vegna kynhneigðar sinnar. Meira
Erlent 21. maí 2013 14:30

Lifði af 300 metra fall - "Ég hélt að ég væri að fara deyja"

"Þegar ég lenti og á jörðinni og áttaði mig á því að ég væri á lífi var ég í losti,“ segir fallhlífastökkvarinn Matthew Gough sem lifði af rúmlega 300 metra fall á Ítalíu um helgina. Meira
Erlent 21. maí 2013 13:48

Missti allt eftir sýruárás og árásarmennirnir ganga lausir

"Það var eins og einhver hefði hent mér á bál,“ segir Sonali Mukherjee um sýruárás sem hún varð fyrir árið 2003. Meira
Erlent 21. maí 2013 13:33

Merkel kennt um ófarir Þýskalands í Eurovision

Þjóðverjar hafa fundið skýringuna á því af hverju þeim gekk ekki betur í Eurovision um helgina en raun ber vitni. Þeir telja að Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, sé um að kenna. Einungis fimm ríki a... Meira
Erlent 21. maí 2013 12:45

Meiri líkur á vöggudauða í rúmi með foreldrum

Ungabörn sem sofa uppi í hjá foreldrum sínum sögð í fimm sinnum meiri hættu. Meira
Erlent 21. maí 2013 08:10

Hátekjuskattur skekur Frakkland

Um tólf þúsund heimili í Frakklandi þurfa að borga meiri skatta en sem nemur tekjum. Meira
Erlent 21. maí 2013 08:07

Opinber rannsókn á stigagjöf Azera í Júróvisjón

Forseti Azerbaijan, Ilham Aliyev, hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á því hvernig það megi vera að land hans gaf Rússlandi ekki eitt einasta stig í Eurovision-sönglagakeppninni. Meira
Erlent 21. maí 2013 07:42

Orgelleikari Doors yfir móðuna miklu

Ray Manzarek, hljómborðsleikari og stofnandi The Doors, lést í gær 74 ára gamall. Meira
Erlent 21. maí 2013 00:49

Gífurleg eyðilegging í Oklahoma

Ástandið í Oklahoma í Bandaríkjunum er vægast sagt hrikalegt eftir óveður sem geysaði þar í kvöld. Hvirfilbylur skók borgina í kvöld með þeim afleiðingum að nokkrar byggingar fóru í rúst, eldar kviknu... Meira
Erlent 20. maí 2013 19:19

Beitti kærustuna ofbeldi og braut nálgunarbann

Leikarinn Edward Furlong handtekinn enn og aftur. Meira
Erlent 20. maí 2013 17:25

Komið í veg fyrir hryðjuverk í Moskvu

Tveir grunaðir hryðjuverkamenn felldir af sérsveitarmönnum Meira
Erlent 20. maí 2013 16:24

Á yfir höfði sér ákærur vegna misnotkunar

Hin átján ára gamla Kaitlyn Hunt frá Flórída átti í ástarsambandi við sér yngri stúlku. Meira
Erlent 20. maí 2013 15:03

Tveir létust í loftbelgsslysi í Tyrklandi

Einn loftbelgur rakst upp undir annan. Meira
Erlent 20. maí 2013 11:22

Sólin hefur góð áhrif á astma

Niðurstöður rannsóknar sýna að tengsl séu á milli lítils magns af D-vítamíni og verri einkenna astma. Meira
Erlent 20. maí 2013 10:45

Giftingar samkynhneigðra til umræðu í breska þinginu

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hvetur flokksbræður sína til að samþykkja frumvarp. Meira
Erlent 20. maí 2013 10:30

Hamfarir í Oklahoma

Að minnsta kosti einn lést þegar skýstrókar fóru yfir smábæinn Shawnee í gær. Meira
Erlent 20. maí 2013 09:47

Að minnsta kosti þrjátíu látnir í eftir röð sprengjuárása í Írak

Átta sprengjur sprungu nærri strætóstöðvum og mörkuðum. Meira
Erlent 19. maí 2013 19:59

Bylting fyrir sjúklinga með lifrarbólgu C

Nýlegar rannsóknir benda til þess að 12 vikna meðferð geti læknað yfir 90% sjúklinga. Meira
Erlent 19. maí 2013 15:20

ESB bannar fjölnota olíukrúsir á veitingahúsum

Skálar og krúsir með alls kyns sósum og olíum, einkum og sér í lagi ólífuolíu heyra brátt sögunni til á veitingastöðum innan landa Evrópusambandsins. Meira
Erlent 19. maí 2013 13:53

20 drengir látist seinustu vikuna vegna umskurða

Um er að ræða frumstæðar aðgerðir sem framkvæmdar eru á hverju ári af ættbálkum í landinu. Meira
Erlent 19. maí 2013 12:54

Reyna að afnema „lög um afnám ofbeldis gegn konum"

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi formaður nefndar Sameinuðu þjóðanna - UN Women í Afganistan, fundaði í gær með forseta afganska þingsins þegar útlit var að ,,... Meira
Erlent 19. maí 2013 12:05

Norður-Kóra skaut eldflaug í átt að Japan

Rússneska fréttastofan Russia Today fullyrðir að Norður-Kóreumenn hafi í morgun skotið á loft eldflaug í tilraunarskyni. Meira
Erlent 19. maí 2013 09:42

Hungurverkfall í Guantanamo nú staðið í 100 daga

Mótmælendur mótmæla við Hvíta húsið og vilja láta loka hinu umdeilda Guantanamo fangelsi. Meira
Erlent 18. maí 2013 18:47

Segir kínverska ferðamenn til skammar fyrir Kína

Wang Yang, aðstoðarforsætisráðherra Kína, segir "ósiðlega hegðun" kínverja á ferðum sínum erlendis eyðileggja ímynd landsins. Meira
Erlent 18. maí 2013 13:35

Fyrsta fermingin í 30 ár hjá dönsku konungsfjölskyldunni

Í dag var prins Nikolai, sonur Jóakims prins, fermdur í Fredensborg Slotskirke. Þetta er fyrsta fermingin hjá dönsku konungsfjölskyldunni í 30 ár. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Erlent / Hver á ekki heima á þessari mynd?
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000