Innlent

Hvatti þjóðir heimsins til að styrkja verkefni á sviði jarðhitanýtingar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Forsætisráðherra Íslands hvatti þjóðir heimsins í dag til að styrkja verkefni á sviði jarðhitanýtingar. Hann segir jafnframt að framlög Íslands til málaflokksins verði aukin.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flutti ræðu sína á leiðtogafundi Sameinuðu Þjóðanna um loftslagsmál í New York í dag. Þar kom meðal annars fram að stefnt sé að því að Ísland hætti að nota jarðefnaeldsneyti og treysti þess í stað á endurnýjanlega orkugjafa.

„Megin áherslan hjá okkur er að benda á þá möguleika sem eru fyrir hendi varðandi nýtingu endurnýjanlegrar orkugjafa og ekki hvað síst jarðvarmans. Þar erum við búin að leggja grunn að bandalagi 50 ríkja varðandi nýtingu jarðvarma og erum nú þegar farin að sjá árangur af þessu í Afríku.“

Þá talaði Sigmundur einnig um áherslur Íslands þegar kemur að landgræðslu , mikilvægi þess að sporna við súrnun sjávar og loks benti hann á aðsteðjandi vandamálum á norðurslóðum sökum hlýnun loftslags. Sigmundur segist hafa fengið góð viðbrögð við ræðu sinni enda hafi Ísland margt og mikið til málanna að leggja þegar kemur að loftlagsbreytingum.

„Sérstaklega þessi þekking okkar á sviði endurnýjanlegrar orkugjafa og við vildum miðla þeirri þekkingu. Í því skyni ætlum við við að setja aukið fjármagn, meðan annars í þetta verkefni sem felst í því að gefa löndum í Afríku tækifæri til að byggja upp sína möguleika á nýtingu jarðvarma.“

Sigmundur er bjartsýnn á að leiðtogafundurinn skili tilætluðum árangri, í það minnsta hafi orðræðan verið með þeim hætti í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×