Innlent

Hvassviðri í öræfum: Húsbíll tættist í sundur í einni hviðunni

Gissur Sigurðsson skrifar
Björgunarsveitarmenn voru í viðbragðsstöðu. Mynd úr safni.
Björgunarsveitarmenn voru í viðbragðsstöðu. Mynd úr safni. Vísir/Ernir
Veður er nú gengið niður í Öræfum og þar um slóðir eftir mikið hvassviðri þar í gærkvöldi og fram á nótt. Húsbíll valt út af veginum og tættist í sundur í einni hviðunni, enn engan þar um borð sakaði.

Björgunarsveitarmenn voru í viðbragðsstöðu og  beindu vegfarendum í skjól heim að Skaftafelli, þar sem margir biðu af sér versta veðrið , og hópur, sem var væntanlegur þangað snemma í gærkvöldi komst ekki fyrr en undir miðnætti í næturstað.

Ekki er vitað um frekara tjón af völdum veðursins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×