Innlent

Hvarf Birnu ekki rannsakað sem saknæmt að svo stöddu

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Á fjórða tug sérhæfðra björgunarsveitarmanna leita nú að Birnu Brjánsdóttur í miðbæ Reykjavíkur. Leitarsvæðið nær frá þeim punkti þar sem síðast sást til Birnu á eftirlitsmyndavélum.
Á fjórða tug sérhæfðra björgunarsveitarmanna leita nú að Birnu Brjánsdóttur í miðbæ Reykjavíkur. Leitarsvæðið nær frá þeim punkti þar sem síðast sást til Birnu á eftirlitsmyndavélum. vísir/eyþór
Gengið verður út frá því að um sé að ræða mannshvarf í tilfelli Birnu Brjánsdóttur og málið því ekki rannsakað sem saknæmt á þessum tímapunkti, segir Grímur Grímsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjölmargar ábendingar hafa borist lögreglunni en engin þeirra hefur skilað neinu.

„Ég vil halda því fram að við séum enn að rannsaka mannshvarf án þess að það blasi við að um sé að ræða refsiverða háttsemi í því sambandi,“ segir Grímur, aðspurður hvort málið sé rannsakað sem saknæmt.

Útgangspunktur leitarinnar sérhæfðra björgunarsveitarmanna er Laugavegur 31 þar sem síðast sást til Birnu á eftirlitsmyndavélum.vísir/loftmyndir
Beðið eftir upptökum og upplýsingum frá bílaleigum

Grímur segir að unnið sé að því að afla ganga í málinu. Beðið sé eftir frekari upplýsingum og upptökum úr öryggismyndavélum og að reynt sé að hafa uppi á fleiri myndavélum í nágrenninu.

Þá segir hann að ökumaðurinn á rauða Kia Rio bílnum sem lögreglan óskaði eftir að ná tali af í morgun hafi enn ekki gefið sig fram. Nú sé gagna beðið frá bílaleigum og í kjölfarið verði unnið út frá þeim.

 

Skipulögð leit að Birnu stendur nú yfir í miðbænum. Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að leitað verði á meðan bjart er en að frekari ákvarðanir hafi ekki verið teknar að svo stöddu. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hefur þyrla gæslunnar ekki verið kölluð út til leitar.

Leitað í 300 metra radíus

Á fjórða tug sérhæfðra björgunarsveitarmanna leita nú að Birnu Brjánsdóttur í miðbæ Reykjavíkur. Leitarsvæðið nær frá þeim punkti þar sem síðast sást til Birnu á eftirlitsmyndavélum ganga ein síns liðs austur Austurstræti, Bankastræti og að húsi til móts við Laugaveg 31. Leitar björgunarfólk í 300 metra radíus út frá þeim punkti.

Að neðan má sjá svipmyndir frá leit björgunarsveitarfólksins í miðbæ Reykjavíkur. Rætt er við björgunarsveitarmanninn Stefán Baldur Árnason.

Síðast var vitað um ferðir Birnu um klukkan 25 mínútur yfir fimm aðfaranótt laugardags. Þá hafði hún, samkvæmt upptökum úr eftirlitsmyndavélum, gengið ein austur Austurstræti, upp Bankastræti og Laugaveg, en á móts við hús númer 31 hverfur hún sjónum. 

Málið er í algjörum forgangi hjá lögreglu og um klukkan ellefu í gærkvöldi voru björgunarsveitarmenn með sporhunda kallaðir út til að taka þátt í leitinni með lögreglu, ættingjum og vinum Birnu. Þá er vitað að sími hennar var notaður undir morgun í Hafnarfirði og er nokkurn veginn vitað á hvaða svæði það var.

Unnið er úr öllum vísbendingum að sögn lögreglu.

Birna er 170 cm á hæð, 70 kíló með sítt rauðleitt hár. Hún var klædd í svartar gallabuxur, gráa peysu, svartan flísjakka með hettu og í svörtum skóm þegar hún sást síðast. Þeir sem telja sig vita eitthvað um ferðir Birnu eru beðnir um að láta vita í síma 444-1000.


Tengdar fréttir

Sporhundurinn Perla leitaði við Húrra og í Flatahrauni

Farið var með sporhundinn Perlu að skemmtistaðnum Húrra í miðbæ í Reykjavíkur í gær og að Flatahrauni í Hafnarfirði til að leita að Birnu Brjánsdóttur sem saknað hefur verið síðan á aðfaranótt laugardags.

Árangurslaus leit að Birnu: Hún er alltaf „online“

Ekkert hefur spurst til Birnu Brjánsdóttur síðan aðfaranótt laugardagsins. Leit vina og vandamanna í gær skilaði ekki árangri. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðaði upptökur úr eftirlitsmyndavélum og símagögn nær sleitulaust í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×