Innlent

Hvar enda Kaupþingstopparnir? Líklega of þungir dómar fyrir Kvíabryggju

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Fjórmenningarnir hefja allir afplánun í Hegningarhúsinu.
Fjórmenningarnir hefja allir afplánun í Hegningarhúsinu. Vísir
Reiknað er með því að Kaupþingsmennirnir fjórir sem dæmdir voru í gær fyrir stórfelld brot muni að stærstum hluta afplána dóminn í fangelsinu að Kvíabryggju. Fangelsið, sem staðsett er rétt fyrir utan Grundarfjörð, er eitt sex fangelsa sem ríkið er með í notkun í dag en þar eru fangar af báðum kynjum, mest 22 í einu.



Fordæmalaus refsing í efnahagsbrotamáli

Ekki hefur áður þurft að velja fangelsi fyrir dæmda efnahagsbrotamenn til að afplána jafn þunga dóma áður. Dómur Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, sem dæmdur var til fimm og hálfs árs fangelsisrefsingar, er sá þyngsti sem fallið hefur í efnahagsbrotamáli hér á landi.



Hinir þrír sem dæmdir voru í málinu fengu mildari dóma. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, og Ólafur Ólafsson, einn af stærstu eigendum bankans, báðir í fjögurra og hálfs árs fangelsi.



Í dómi Hæstaréttar frá því í gær segir að brotin sem fjórmenningarnir séu dæmdir fyrir eigi sér ekki hliðstæðu hér á landi. „Þessi brot voru stórum alvarlegri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dómaframkvæmd varðandi efnahagsbrot,“ segir í dómnum.



Allir karlar fyrst í Hegningarhúsið

Páll Winkel fangelsismálastjóri segir í samtali við Mbl.is að allir karlmenn hefji afplánun í Hegningarhúsinu sem stendur við Skólavörðustíg í miðbæ Reykjavíkur. Misjafnt er hversu lengi fangar dvelja þar en Páll segir það vera allt frá nokkrum dögum til árs. 

„Eng­inn fer beint í opið fang­elsi. All­ir karl­menn koma fyrst til afplán­un­ar í Hegn­ing­ar­hús­inu þar sem farið er yfir stöðu viðkom­andi, brota­fer­il, ástand og annað þess hátt­ar í sam­ræmi við lög um fulln­ustu refs­inga. Síðan eru menn eft­ir at­vik­um flutt­ir á Litla-Hraun eða í opnu fang­els­in,“ seg­ir Páll við Mbl.is.



Eftir að þetta mat hefur fram er það ákvörðun Fangelsismálastofnunnar hvert viðkomandi fangi er sendur. 

Miðað við tvö ár í opnu fangelsi

Algengt hefur verið að efnahagsbrotamenn séu sendir til afplánunar á Kvíabryggju. Fangelsið var fyrst um sinn fyrir þá sem ekki greiddu meðlagsskuldir eða barnalífeyri en allt frá 1963 hafa verið vistaðir refsifangar þar. 22 fangaklefar eru í fangelsinu auk eldhúss, borðstofu, góðs æfingarsalar og billiardaðstöðu í kjallara.



Engir rimlar eru fyrir gluggum og er svæðið ekki afgirt með öðrum hætti en tíðkast á sveitabýlum. Þar fara helst menn sem hafa lítinn sakaferil og þeir sem Fangelsismálastofnun ætlar að sé treystandi til þess að afplána við þessar aðstæður.



Samkvæmt upplýsingum í bæklingi sem Fangelsismálastofnun hefur gefið út um fangelsið Kvíabryggju koma fram eftirfarandi viðmið sem horft er til þegar valið er hvaða fangar afplána þar:

  • Að fangi afpláni að jafnaði ekki lengur en 2 ár á staðnum.

  • Að fangi sé að undirbúa sig undir að refsivist ljúki.

  • Að fangi sé ekki háður vanabindandi lyfjum.

  • Að fangi sé fær um að afplána við lágmarks gæslu, stundi vinnu eða nám og sé reiðubúinn til að taka virkan þátt í starfsemi fangelsisins.

Við skoðun þessara viðmiða kemur strax í ljós að allir hinna dæmdu Kaupþingsmanna falla á fyrsta viðmiðinu. Þeir fengu allir að minnsta kosti fjögurra ára fangelsisdóm fyrir brot sín. Það er þó, eins og áður segir, ákvörðun Fangelsismálastofnunnar hvert fangar eru sendir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×