Menning

Hvar, hver, hvað?

Magnús Guðmundsson skrifar
Þekkir þú þessa konu? Myndin er eftir Halldór E. Halldórsson en safn hans er á meðal þess sem Þjóðminjasafnið sýnir.
Þekkir þú þessa konu? Myndin er eftir Halldór E. Halldórsson en safn hans er á meðal þess sem Þjóðminjasafnið sýnir. Mynd/Halldór E. Arnórsson
Á laugardaginn kl. 15 verða opnaðar tvær bráðskemmtilegar ljósmyndasýningar í Þjóðminjasafninu.

Í Myndasal Þjóðminjasafnsins verður sýningin Hvar, hver, hvað? Á sýningunni verða ógreindar ljósmyndir úr Ljósmyndasafni Íslands og vonast er til að safngestir geti gefið upplýsingar um myndefnið. Slíkar sýningar eru nefndar greiningarsýningar og hafa skilað góðum árangri.

Ólöf Breiðfjörð, kynningarstjóri safnsins, segir slíkar sýningar bæði mjög skemmtilegar fyrir gesti sem og mikilvægar fyrir söfn. „Þegar filmusöfn ljósmyndara rata inn á söfn kemur oft í ljós að myndefnið hefur ekki verið skráð og því ekki ljóst hvar og hvenær myndir voru teknar eða hver og hvað er á þeim. Slík þekking stóreykur nýtingarmöguleika mynda.

Það kemur gestunum oft skemmtilega á óvart hvað það þekkir af myndunum og svo spyrst þetta út á meðal fólks í ákveðnum hópum og þá myndast skemmtileg keðjuverkun.“

Húsin í bænum

Á laugardaginn verður einnig opnuð sýningin Húsin í bænum á Veggnum í safninu. Þar verða sýndar ljósmyndir Kristins Guðmundssonar af húsum í Reykjavík á árunum 1975-1985.

Ólöf segir myndirnar góðan vitnisburð um tíðarandann og ástand miðbæjarins á þessum áratug.

Kristinn Guðmundsson (1934-2006) starfaði um árabil sem bókavörður í Bókabílnum. „Kristinn virðist hafa myndað á frídögum eða um helgar þegar rólegt var í bænum og fáir á ferli og verið einkar næmur á þær þjóðfélagsbreytingar sem lágu í loftinu á þessum tíma.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×